Torreira hetjan í naumum sigri Arsenal Arnar Geir Halldórsson skrifar 8. desember 2018 16:45 Vísir/Getty Arsenal fékk Huddersfield í heimsókn á Emirates leikvanginn í Lundúnum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Bjuggust eflaust margir við að Arsenal myndi raða inn mörkum á Huddersfield enda mikill munur á spilamennsku liðanna upp á síðkastið. Leikurinn var hins vegar markalaus alveg fram á 83.mínútu þegar úrugvæski miðjumaðurinn Lucas Torreira skoraði eftir undirbúning Pierre-Emerick Aubameyang. Reyndist það eina mark leiksins og Arsenal þar með komið upp í 3.sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn