Lífið

Hræðilegir skilnaðarskellir

Offset og Cardi B á American Music Awards í október síðastliðnum.
Offset og Cardi B á American Music Awards í október síðastliðnum. Axelle/Bauer-Griffin/FilmMagic
Í vikunni bárust skelfileg tíðindi – rappparið Cardi B og Offset eru skilin! Mörgum er það eflaust þungbært en þau skildu þó í mikilli vinsemd. Hér er farið yfir nokkra af erfiðustu skilnuðum síðustu ára.

Anna Faris og Chris Pratt

Þegar þessi elskuðu krútt skildu fóru bókstaflega höggbylgjur um heimsbyggðina. Almáttugur!

Selma og Rúnar Freyr

Stærsta „celebrity“ par á Íslandi fram að skilnaðinum. Það þurfti auðvitað skilnað til að gera þetta alvöru Hollywood hjónaband.

Selma Björnsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason.
Brad Pitt og Jennifer Aniston

Tíundi áratugurinn dó um leið og þetta stjörnupar sleit sambúðinni.

Brad Pitt og Jennifer Aniston.Getty/Kevin Winter
Heidi Klum og Seal

Nei, þarna fór þessi grimma veröld alveg með það.

Will Arnettt og Amy Poehler


Fyndnustu hjón veraldar skildu og heimurinn varð töluvert grárri.

Will Arnett og Amy Poehler.Getty/Dimitrios Kambouris
Emma Stone og Andrew Garfield

Þetta Spiderman par var svo hrikalega fullkomið. Þetta eyðilagði líf okkar hérna á ritstjórninni

Emma Stone og Andrew Garfield.Getty/Frazer Harrison
Bubbi og Brynja

Hrunið kom aðeins örfáum árum eftir þennan skilnað – tilviljun... ?

Bubbi Morthens.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.