Meistararnir ekki í vandræðum með Dýrlingana

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Meistararnir á sigurbraut á ný
Meistararnir á sigurbraut á ný vísir/getty
Englandsmeistarar Manchester City eru komnir aftur á beinu brautina í ensku úrvalsdeildinni eftir öruggan 1-3 sigur á Southampton á St.Mary´s leikvangnum í dag.

David Silva opnaði markareikninginn strax á 10.mínútu með marki eftir undirbúning Bernardo Silva. Oleksandr Zinchenko gerði sig svo sekan um slæm mistök á 37.mínútu sem leiddi til jöfnunarmarks Pierre-Emile Højbjerg. 

City fór engu að síður með tveggja marka forystu í leikhléið þar sem þeir skoruðu tvö mörk í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Hálfleikstölur 1-3 og reyndust það lokatölur leiksins.

Southampton náði ekki að ógna meisturunum að ráði í síðari hálfleik og ekki vænkaðist hagur þeirra þegar Højbjerg fékk að líta beint rautt spjald fyrir glórulausa tæklingu á Fernandinho á 85.mínútu. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira