Gylfi byrjaði á bekknum í tapi Everton Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar 29. desember 2018 16:45 Gylfi Þór byrjaði á bekknum í dag en kom inn á í tapi vísir/getty Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson byrjaðu á bekknum í liði Everton er liðið tapaði gegn Brighton á útivelli í ensku úrvalsdeildinni. Allt var markalaust þegar flautað var til hálfleiks. Það dró svo til tíðinda eftir tæplega klukkutímaleik þegar Jurgen Locadia kom boltanum fram hjá Jordan Pickford í marki Everton eftir hornspyrnu. Gylfi kom inn á skömmu síðar en náði ekki að setja mark sitt á leikinn. Sterkur sigur Brighton á heimavelli staðreynd. Brigthon er í 13. sæti deildarinnar eftir sigurinn, og er komið með þægilegt forskot á neðstu sjö lið deildarinnar. Everton er í tíunda sæti deildarinnar. Enski boltinn