Liverpool á toppnum um jólin

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Þessir sáu um Wolves
Þessir sáu um Wolves vísir/getty
Liverpool verður á toppi ensku úrvalsdeildarinnar þegar jólin ganga í garð en liðið vann öruggan 0-2 sigur á nýliðum Wolverhampton Wanderers í kvöld.

Leikurinn var átján mínútna gamall þegar egypski snillingurinn Mohamed Salah kom Liverpool á bragðið eftir góðan undirbúning Fabinho. Staðan í leikhléi 0-1 fyrir Liverpool. 

Hollenski varnarmaðurinn Virgil van Dijk tryggði gestunum svo sigurinn þegar hann skoraði framhjá varnarlausum Rui Patricio eftir fyrirgjöf Salah. Fleiri urðu mörkin ekki og nokkuð öruggur sigur Liverpool staðreynd.

Liverpool er því komið með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar en Man City á leik til góða og getur minnkað forskotið niður í eitt stig með því að leggja Crystal Palace að velli á morgun. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira