Vardy kláraði Chelsea

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leikmenn Leicester fagna sigurmarki Vardy.
Leikmenn Leicester fagna sigurmarki Vardy. vísir/getty
Leicester gerði sér lítið fyrir og fór á Stamford Bridge og lagði þar heimamenn í Chelsea 1-0.

Staðan var markalaus í hálfleik en Chelsea hafði stýrt umferðinni og hafði átt hættulegustu færi fyrri hálfleiks.

Fyrsta og eina markið skoruðu hins vegar gestirnir en eftir frábært spil þá lagði James Maddison boltann á Jamie Vardy sem þrumaði boltanum framhjá varnarlausum Kepa.

Chelsea er því áfram í fjórða sæti deildarinnar og er með 37 stig, ellefu stigum á eftir toppliði Liverpool.

Með sigrinum fór Leicester upp í áttunda sæti deildarinnar, upp fyrir Everton og Wolves en Everton leikur gegn Tottenham á morgun.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira