Lífið

Lively og Reynolds trylltust þegar þau heyrðu rödd dóttur sinnar á tónleikum Taylor Swift

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ryan Reynolds og Blake Lively voru mjög ánægð með stelpuna.
Ryan Reynolds og Blake Lively voru mjög ánægð með stelpuna. vísir/getty
Ryan Reynolds og Blake Lively mættu á tónleika Taylor Swift á Gillette vellinum í Boston í gærkvöldi.

Hjónin eiga saman tvö börn og James Reynolds leikur nokkuð stórt hlutverk í lagi Swift, Gorgeous. James er þriggja ára en hún á fyrstu setninguna í laginu sjálfu.

Foreldrarnir trylltust því á tónleikunum þegar lagið byrjaði og náðu fjölmargir tónleikagestir að fanga atvikið á síma.

Hjónin voru á tónleikunum með ofurfyrirsætunni Gigi Hadid og skemmtu þau sér greinilega mjög vel.

Hér að neðan má sjá valin tíst frá þeim hjónum í stúkunni. Einnig má sjá lagið sjálft með Taylor Swift.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.