Lífið

Í fyrsta skipti í 30 ár í fastri vinnu: Bergþór og Albert fóru til Eyfa í tannhvíttun

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eyjólfur Kristjánsson er kominn í snyrtibransann.
Eyjólfur Kristjánsson er kominn í snyrtibransann.
Eyjólfur Kristjánsson hefur verið stórt partur af íslensku tónlistarlífi á undanförnum þremur áratugum. Hann hefur hljóðritað yfir tvö hundruð lög á ferlinum og eftir hann liggja margar helstu dægurmálaperlum þjóðarinnar.

Eyjólfur var skíðakennari í Kerlingarfjöllum áður en ferillinn hófst en hefur eingöngu starfað sem tónlistarmaður síðustu þrjátíu ár. Nú kveður hinsvegar við nýjan tón hjá Eyfa sem er í fyrsta sinn í þrjátíu ár búinn að ráða sig í fasta vinnu.

„Maður bara búinn að henda frá sér gítarnum, samt ekki alveg. Ég ákvað að fara á námskeið í tannhvíttun,“ segir Eyfi en hann starfar nú á snyrtistofunni Heilsa og útlit sem konan hans Sandra rekur.

„Það stóð alltaf til að bæta þessu við og það var bara ákveðið að senda mig á námskeið í tannhvíttun. Í staðinn fyrir að ráða nýja manneskju var áveðin að ég myndi hætta að horfa á Breaking Bad í þrítugasta skipti heima hjá mér og byrja bara að vinna. Við fórum því saman til Englands og lærðum þessa fræði, bæði bóklega og verklega hlutann.“

Albert og Bergþór voru sáttir með útkomuna.
Eyfi segir að rútínan sé bara virkilega skemmtileg. Bergþór Pálsson og Albert Eiríksson voru í raun fyrstu alvöru kúnnar tónlistarmannsins í tannhvíttuninni.

„Mér líst bara vel á þetta, en það getur bara vel verið að hann verði rekinn,“ segir Sandra Lárusdóttir, eiginkona Eyfa og bætir hún við að á snyrtistofunni ráði Eyfi engu.

„Okkur langaði í raun bara að vinna saman og stækka fyrirtækið okkar.“

Hér að neðan má sjá þáttinn frá því í gær í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.