Lífið

Ágústspá Siggu Kling komin á Vísi!

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir ágústmánuð má sjá hér fyrir neðan.

Sigga leggur leggja áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýta sér orkuna, klappa sér á bakið og elska lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.

Sigga Kling verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi klukkan 14:00 í dag og geta lesendur sent inn spurningar í athugasemdarkerfinu hér að neðan. Hægt verður að spyrja Siggu um allt á milli himins og jarðar.

Sigga býður upp á þjónustunámskeið fyrir fyrirtæki af öllum toga: Hópefli – hressingarfyrirlestur sem getur verið hentugur í hádegishlé eða í byrjun vinnudags. Einnig tekur hún að sér hópa sem vilja eiga jákvæða og gleðilega kvöldstund. Þeir sem hafa áhuga gefa haft samband við Siggu með því að senda tölvupóst á siggakling@gmail.com


Tengdar fréttir

Stjörnuspá Siggu Kling – Krabbinn: Töfrar yfir þér eins og regnboganum

Elsku Krabbinn minn, mikið er ég ánægð að þurfa að skrifa um þig, það er aldrei lognmolla eða leiðindi þegar þú mætir og þú getir einkennst af feimni þá finnst engum þú vera það. Þú ert allur tilfinningaskalinn en nærð ekki alveg að sjá sjálfan þig í réttu ljósi eins og aðrir sjá þig.

Stjörnuspá Siggu Kling – Meyjan: Ekki tala of mikið um erfiðleika

Elsku Meyjan mín, það er byrjað hjá þér mjög sérstakt tímabil sem líkist því að þú sért á sjó, það koma miklar öldur og þú verður svo ánægð þegar þú ert komin yfir það svæði, finnur að sjórinn er lygin og útsýnið í kring gott.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.