Lífið

Heldur brúðkaup á afmælinu

Guðný Hrönn skrifar
Courteney Cox skaust upp á stjörnuhimininn í gamanþáttunum Vinum.
Courteney Cox skaust upp á stjörnuhimininn í gamanþáttunum Vinum. Vísir/Cover Media
Fregnir herma að leikkonan Courteney Cox og írski gítarleikarinn Johnny McDaid ætli að gifta sig í sumar. Samkvæmt slúðurtímaritinu Closer eru skötuhjúin að plana brúðkaup í borginni Derry í Írlandi, þaðan sem McDaid er.

Brúðkaupið er sagt verða haldið þann 15. júní sem er afmælisdagur Cox, þá mun hún fagna 54 ára afmæli.

Cox og McDaid hafa verið saman síðan í desember árið 2013 en þau trúlofuðu sig árið 2015.

Þess má geta að þetta verður annað hjónaband Cox en hún var gift leikaranum David Arquette frá árinu 1999 til ársins 2013. Þau eiga saman eina dóttur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.