Lífið

Tólf smáatriði sem þú hefur aldrei tekið eftir í Friends

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vinsælustu gamanþættir sögunnar eru án efa Friends.
Vinsælustu gamanþættir sögunnar eru án efa Friends.
Gamanþættirnir Friends njóta enn gríðarlegra vinsælda og horfa milljónir manna á þættina daglega.

Friends voru framleiddir á árunum 1994-2004 og þekkja margir þættina vel.

Á YouTube-síðunni Bright Side er búið að taka saman tólf smáatriði úr þáttunum sem má skilgreina sem mistök og þú hefur væntanlega aldrei tekið eftir.

12. Það var ástæða fyrir því af hverju sófinn á kaffihúsinu var alltaf laus.

11. Monica kynnti Chandler fyrir Rachel í fyrsta þættinum, svona eins og þau hefðu aldrei hist áður. Síðan kom aftur á móti í ljós að þau þekktust vel á árum áður.

10. Monica átti krukku sem setja átti pening í ef einhver myndi öskra á veitingarstað sem hún starfaði á. 

9. Útsýnið út um eldhúsgluggann hjá Monicu breyttist stundum.

8. Einkennileg skilaboð á tússtöflunni hjá Chandler og Joey.

7. Árið 1999 voru öll nöfnin röng í kreditlistanum í einum þætti. Allir leikararnir voru með eftirnafnið Arquette í tilefni af því að Courteney Cox hafði gengið í hjónaband með David Arquette.

6. Ross átti tvo afmælisdaga.

5. Enginn hlær að bröndurum Chandler í þáttunum. 

4. Sama leikkonan lék umboðsmann Joey og einnig hjúkrunarkonu á spítala. 

3. Óvenjulegt sjónarhorn.

2. Emily var ekki í brúðarkjólnum sem vinkonurnar völdu þegar hún giftist Ross. 

1. Courteney Cox var ólétt þegar síðasti þátturinn var tekinn upp. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.