Lífið

Allt tónlist sem snertir tilfinningarnar

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Halldór Bjarki, Sigríður Ósk og Sigurður Halldórs eru í hinum fasta kjarna Symphonia Angelica.
Halldór Bjarki, Sigríður Ósk og Sigurður Halldórs eru í hinum fasta kjarna Symphonia Angelica.
Barokkhópurinn Symphonia Angelica býður upp á dagskrá undir yfirskriftinni Barokk hjartans í Fríkirkjunni í Reykjavík annað kvöld, 2. mars klukkan 20.

„Þetta er einstök dagskrá, allt tónlist sem snertir tilfinningarnar. Harmþrungin aría en líka ást, léttleiki, gleði og fögnuður,“ segir Sigurður Halldórsson sellóleikari, einn þeirra sem koma fram í Sym­phonia Angelica á morgun.

Hinir eru Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran, Laufey Jensdóttir fiðluleikari, Halldór Bjarki Arnarson semballeikari og Arngeir Heiðar Hauksson teorbuleikari. Sérstakur gestur er Elmar Gilbertsson tenór.

Aríur og dúettar úr óperunni Krýning Poppeu eftir Monteverdi og óperum eftir Händel eru meðal verka. Þá leikur Laufey Jensdóttir einleik í fiðlusónötu Bibers, Sonata representativa, þar sem fiðlan líkir eftir hinum ýmsu dýrahljóðum, svo sem ketti, næturgala og gauk. „Það koma tveir kaflar úr fiðlusónötunni hér og þar inn á milli aríanna,“ útskýrir Sigurður sem segir prógrammið eitt það flottasta sem hann hafi tekið þátt í lengi.

„Líka að hafa Elmar og Sigríði Ósk þarna saman, það er gaman. Ég hef ekki unnið með Elvari áður en hann er ótrúlegur, getur sungið hvaða stíl sem er. Hann var einmitt að syngja hlutverkið í Poppeu úti í Hollandi frá því um mitt sumar og fram í nóvember.“

Á döfinni hjá Symphonia Angelica er stórt norrænt verkefni í samvinnu við FIBO Collegium þar sem margir helstu barokkhópar Norðurlanda koma við sögu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×