Fyrsta opinberlega heimsókn tilvonandi hjónanna á þessu ári var á útvarpsstöð í Peckham í byrjun vikunnar og vakti klæðaburður Markle athygli að venju. Hún hefur hingað til valið að klæðast bandarískum eða kanadískum merkjum en í þetta sinn valdi hún að blanda inn breskri hönnun líka.
Kápan var frá kanadíska merkinu Smythe og seldist upp um leið, toppurinn frá Marks & Spencer, buxur frá Burberry og svo trefill frá Jigsaw, merki sem einmitt er uppáhaldi hjá tilvonandi svilkonu hennar Katrínar prinsessu.



