Lífið

Amy Schumer og Chris Fischer eiga von á barni

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Schumer stóðst að sjálfsögðu ekki mátið og leyfði húmornum að ráða för þegar hún sagði fylgjendum sínum frá.
Schumer stóðst að sjálfsögðu ekki mátið og leyfði húmornum að ráða för þegar hún sagði fylgjendum sínum frá. Instagram/Amy Schumer
Leikkonan og grínistinn Amy Schumer kom aðdáendum sínum heldur betur á óvart í gær þegar hún tilkynnti fylgjendum sínum á Instagram að hún og Chris Fischer, eiginmaður hennar, ættu von á barni.

Schumer stóðst að sjálfsögðu ekki mátið og leyfði húmornum að ráða för þegar hún sagði fylgjendum sínum frá.

Schumer birti ljósmynd af Harry Bretaprins og Meghan hertogynju af Sussex, sem eiga líka von á barni, en klippti höfuð sitt og eiginmannsins inn á ljósmyndina.

Schumer og Fischer gengu að eiga hvort annað í febrúar á þessu ári. Fischer er kokkur en hann hefur gefið út matreiðslubókina The Beetlabund Farm Cookbook.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.