Lífið

Bresku götu­blöðin upp­full af sögum um „erfiða“ og „stjórn­sama“ Meg­han Mark­le

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Meghan Markle á bresku tískuverðlaununum í liðinni viku.
Meghan Markle á bresku tískuverðlaununum í liðinni viku. vísir/getty
Undanfarna daga hafa bresku götublöðin verið uppfull af sögum um það hversu „erfið“ og „stjórnsöm“ Meghan Markle er sögð vera en hún er eiginkona Harry prins.

Hjónin, sem hafa opinberu titlana hertoginn og hertogaynjan af Sussex, eru nú kölluð Chandler og Monica af starfsliði sínu vegna stjórnsemi Meghan, að því er fram kemur í götublaðinu The Sun.

Flestir kannast eflaust við þau Chandler og Monicu úr Friends-þáttunum en eitt af karaktereinkennum Monicu var einmitt stjórnsemi.

Þá er fyrirsögn fréttar á vef Mirror um hvernig Meghan hefur breytt Harry: „Frá því að hætta að veiða yfir í nýjan stíl,“ en í slúðurmiðlunum er því haldið fram að Meghan hafi bannað Harry að fara á veiðar á jóladag eins og hann hefur vanalega gert.

Neikvæður fréttaflutningurinn komi á óvart

Á vef Daily Mail veltir blaðamaður því upp hvort að Meghan sé of uppreisnargjörn eða stolt af því að vera öðruvísi.

Greint hefur verið frá því að starfsfólk hafi hætt í vinnu konungsfjölskyldunni vegna þess hve Meghan á að vera erfið og þá eru hún og Katrín hertogaynja af Cambridge, eiginkona Vilhjálms prins, sagðar ekki ná vel saman.

Rhiannon Mills, fréttamaður á Sky sem sérhæfir sig í fréttaflutningi af bresku konungsfjölskyldunni, segir í skoðanapistli að mikið af þeim fréttum sem birst hafi um helgina um vandamál innan fjölskyldunnar vegna Meghan séu uppspuni frá rótum. Þetta hafi hún eftir sínum heimildarmönnum.

Þá hafi fréttaflutningurinn komið henni á óvart þar sem breskur almenningur hafi í upphafi tekið Meghan opnum örmum.

Nú virðist hins vegar sem fólk þyrsti í neikvæðar fréttir af hertogahjónunum af Sussex. Neikvæður fréttaflutningur af konungsfjölskyldunni er þó auðvitað ekki nýr af nálinni.

Mills bendir á að það ýti einnig undir sögusagnir af alls kyns erfiðleikum vegna Meghan að hún og Harry hafa ekki sést opinberlega með Katrínu og Vilhjálmi í tæpa tvo mánuði og því verði væntanlega allra augu á fjórmenningunum á jóladag þegar konungsfjölskyldan fer til messu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.