Lífið

Bein útsending: Íslendingar um allt land syngja saman

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Klikkuð stemmning.
Klikkuð stemmning.

Dagur íslenskrar tónlistar tónlistar er haldinn hátíðlegur í dag fimmtudaginn 6. desember. Af því tilefni mun þjóðin syngja saman lögin Vikivaka eftir Valgeir Guðjónsson við texta Jóhannesar úr Kötlum, Hossa Hossa með Amabadama og B.O.B.A. með JóaP og Króla.



Útvarpsstöðvar munu flytja lögin og allir sem vettlingi geta valdið eru hvattir til að taka undir; í vinnunni, Strætó, sturtunni, úti í búð, skólanum eða bara í stofunni heima.



Sérstakir velunnarar íslenskrar tónlistar fá hvatningarverðlaun á Skelfiskmarkaðnum á fimmtudaginn en þar verða lögin að sjálfsögðu einnig flutt. Þá munu börn úr Hjallastefnunni syngja í upphafi ásamt kór viðstaddra en svo hlaðið í fyrrnefnd þrjú lög.



Viðburðinum á Skelfiskmarkaðnum er streymt og má sjá að neðan í beinni útsendingu sem hefst um klukkan 11:15.



Að neðan má sömuleiðis sjá textana við lögin þrjú svo allir geti tekið undir.

Að neðan má sjá myndband sem sett var saman í tilefni dagsins þar sem sjá má brot úr fjölmörgum íslenskum tónlistarmyndböndum og viðburðum.

Vikivaki

Sunnan yfir sæinn breiða

sumarylinn vindar leiða -

draumalandið himin heiða

hlær og opnar skautið sitt.



Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt!



Gakk þú út í græna lundinn,

gáðu fram á bláu sundin -

mundu að það er stutt hver stundin

stopult jarðneskt yndið þitt. 

Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt!



A a ...



Allt hið liðna er ljúft að geyma,

láta sig í vöku dreyma.

Sólskinsdögum síst má gleyma

segðu engum manni hitt.

Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt!



A a ...



Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt!

HOSSA HOSSA

Láta' allt gossa, hrista bossa, èg vil sjà tungukossa,

kveikja' í kroppum àstarblossa, allir saman Hossa Hossa!

Hossa Hossa!



Láta' allt gossa, hrista bossa, èg vil sjà tungukossa,

kveikja' í kroppum àstarblossa, allir saman Hossa Hossa!

Hossa Hossa!



Dansgólfið sjóðandi heitt, og fólkið löðrandi sveitt,

við dönsum óáreitt og hugsum ekki um neitt

nema hvort annað

og allt það sem er bannað



Þegar ég fer út að dansa vil ég finna bassann

Frà bàðun fótum, mínum rótum, upp í brjóstkassann

Sveifla mér um gólfið með þér eins og Jane og Tarzan

engar áhyggjur af syninum því pabbi er að passa´ann.



Ég vil ekki vera leið og lúin, leyfi mér að flissa

finna bassann bánsa, ekki hangsa bossann hrissta

Týna mér í transi, dansi, dillaðu þér systa

og ef mig langar þig að kyssa skaltu ekki verða hissa.



Boom biddi bæ fyrir dansana dansarana og dansvana,

boom nirri bæ það er amabadama engin leið að stansana,

bomm boddi bæ firri boom boom boom bara bassi við elskum bassana,

bara boom boom boom amaba hún hrisstir a ser rassana! EY!



Láta' allt gossa, hrista bossa, èg vil sjà tungukossa,

kveikja' í kroppum àstarblossa, allir saman Hossa Hossa!

Hossa Hossa!



Láta' allt gossa, hrista bossa, èg vil sjà tungukossa,

kveikja' í kroppum àstarblossa, allir saman Hossa Hossa!

Hossa Hossa!



Dansgólfið sjóðandi heitt, og fólkið löðrandi sveitt,

við dönsum óáreitt og hugsum ekki um neitt

nema hvort annað

og allt það sem er bannað



Ef dansgólfið er troðið þá loka ég oft augum (lokaðu augunum)

Það kemur mér í fílinginn og slakar á taugum (slakaðu´á taugunum)

útilokar alla þá sem eru á sporbaug um mig

og fær mig til að gleyma mínum áhyggju draugum



Mér þykir alltaf best að Hossa Hossa´ á berum tánum

með magann inn og rassinn út og smá bogin í hnjánum

halta taktinum í dansinum með vinum og kumpánum

og koma mér í kelerí sem enda´á kynnum nánum



Boom biddi bæ fyrir dansana dansarana og dansvana,

boom nirri bæ það er amabadama engin leið að stansana,

bomm boddi bæ firri boom boom boom bara bassi við elskum bassana,

bara boom boom boom amaba hún hrisstir a ser rassana! EY!



Láta' allt gossa, hrista bossa, èg vil sjà tungukossa,

kveikja' í kroppum àstarblossa, allir saman Hossa Hossa!

Hossa Hossa!



Láta' allt gossa, hrista bossa, èg vil sjà tungukossa,

kveikja' í kroppum àstarblossa, allir saman Hossa Hossa!

(allir saman Hossa Hossa!)



Hossa Hossa! (allir saman Hossa Hossa!)



Rugga Rugga Rugga því vil Reggí Reggí Reggí í!

Rugga Rugga Rugga því vil Reggí Reggí Reggí í

líkamann, jaman, aftan í og að framann

við erum AmabAdamAn

Hristum okkur saman!



Láta' allt gossa, hrista bossa, èg vil sjà tungukossa,

kveikja' í kroppum àstarblossa, allir saman Hossa Hossa!



Hossa Hossa!



Láta' allt gossa, hrista bossa, èg vil sjà tungukossa,

kveikja' í kroppum àstarblossa, allir saman Hossa Hossa!



Hossa Hossa!

B.O.B.A.

Þetta var algjör bomba. Seg'ég og skrifa, B.O.B.A



B.O.B.A. það er bomba

Fýla ekki góða píu, fýla bara vonda

Fyrsta deiti, púlla upp í i30 Hyundai

Slæmar stelpur gera mig svo rousey eins og Ronda



B.O.B.A. hún er bomba

Fýla ekki góða píu, fýla bara vonda

Fyrsta deiti, púlla upp í i30 Hyundai

Slæmar gellur gera mig svo rousey eins og Ronda



Ég fýla stelpur sem að strauja kortið mitt

Tease'a og tala og spjalla smá of mikið fyrir kortið shit

á, hún er mín biii

Og ef henni vantar far, þá hringir hún sko í mig



Svörin eru ójöfn og bara stundum

Og þekkir mig og pabba minn ekki alltaf í sundur

En Chey, já ég dýrka þessa píu

Og hún sýnir mér sko áhuga, samt bara pínu



B.O.B.A. það er bomba

Fýla ekki góða píu, fýla bara vonda

Fyrsta deiti, púlla upp í i30 Hyundai

Slæmar stelpur gera mig svo rousey eins og Ronda



B.O.B.A. hún er bomba

Fýla ekki góða píu, fýla bara vonda

Fyrsta deiti, púlla upp í i30 Hyundai

Slæmar gellur gera mig svo rousey eins og Ronda



B.O.B.O bomba

Fýla gellu frekar vonda

Sem að erfitt er að bonda með

Og hring'ekki hvenær sem er

Gella með glingur, já hún er vond

Púllup óboðinn nei, ding dong



Hún fýlar ekki lögin mín en, en mér er sama

Eitt er fyrir víst að þessi gell'er slæm dama

Hún er alltaf vond við mig, orðið að vana

Myndi gera allt saman, allt fyrir hana



B.O.B.A. það er bomba

Fýla ekki góða píu, fýla bara vonda

Fyrsta deiti, púlla upp í i30 Hyundai

Slæmar stelpur gera mig svo rousey eins og Ronda



B.O.B.A. hún er bomba

Fýla ekki góða píu, fýla bara vonda

Fyrsta deiti, púlla upp í i30 Hyundai

Slæmar gellur gera mig svo rousey eins og Ronda



B.O.B.A. það er bomba

Fýla ekki góða píu, fýla bara vonda

Fyrsta deiti, púlla upp í i30 Hyundai

Slæmar stelpur gera mig svo rousey eins og Ronda



B.O.B.A. hún er bomba

Fýla ekki góða píu, fýla bara vonda

Fyrsta deiti, púlla upp í i30 Hyundai

Slæmar gellur gera mig svo rousey eins og Ronda



(B.O.B.A. hún er bomba)

(Fýla ekki góða píu, fýla bara vonda)

(Fyrsta deiti, púlla upp í i30 Hyundai)

(Slæmar gellur gera mig svo rousey eins og Ronda)



(B.O.B.A. hún er bomba)

(Fýla ekki góða píu, fýla bara vonda)

(Fyrsta deiti, púlla upp í i30 Hyundai)

(Slæmar gellur gera mig svo rousey eins og .. )






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.