Bíó og sjónvarp

Matt Damon lék reiðan og sáran Brett Kavanaugh

Birgir Olgeirsson skrifar
Matt Damon sem Brett Kavanaugh.
Matt Damon sem Brett Kavanaugh. SNL
Bandaríski Óskarsverðlaunahafinn Matt Damon brá sér í hlutverk Brett Kavanaugh, hæstaréttardómaraefni Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, í þættinum Saturday Night Live sem sýndur var vestanhafs í nótt.

Kavanaugh hafði verið yfirheyrður af dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings í liðinni viku vegna ásakana sálfræðingsins Christine Blasey Ford sem segist hundrað prósent viss um að hann hafi reynt að nauðga henni fyrir 36 árum, eða þegar Kavanaugh var 17 ára og hún 15 ára.

Reynt var að endurgera vitnisburð Kavanaugh í Saturday Night Live og sýndi Matt Damon nokkur tilþrif sem hæstaréttardómaraefnið.

Líkt Kavanaugh var Damon nokkuð tilfinningaríkur í túlkun sinni, byrjar á að bregðast ókvæða við ávarpi nefndarinnar og lýsa því yfir að hann ætli að byrja framsögu sína af miklum ákafa og gefa enn frekar í þegar á líður. 

Sjá má frammmistöðu Damon hér fyrir neðan: 




Tengdar fréttir

Bein útsending: Kavanaugh svarar ásökunum um kynferðisbrot

Brett Kavanaugh, sem Donald Trump hefur tilnefnt til Hæstaréttar Bandaríkjanna, mætir í kvöld á fund þingmálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþingsm þar sem hann mun svara ásökunum um kynferðsibrot og verja tilnefningu sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.