Lífið

Aron Einar og Kristbjörg tilkynntu um kynið með krúttlegu myndbandi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Kristbjörg og Aron geisluðu í Hallgrímskirkju þegar þau giftu sig síðasta sumar.
Kristbjörg og Aron geisluðu í Hallgrímskirkju þegar þau giftu sig síðasta sumar. Vísir / Andri Marinó
Aron Einar Gunnarsson, atvinnumaður í knattspyrnu og fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, og eiginkona hans, Kristbjörg Jónasdóttir, afrekskona í fitness, eiga von á strák.

Hjónin tilkynntu þetta á Instagram-síðu Aron Einars þar sem sonur þeirra, Óliver, fékk þann heiður að sýna heiminum kyn barnsins með því að sprengja blöðru þar sem á stóð „Boy or Girl?“ eða „stelpa eða strákur?“

Úr blöðrunni skutust bláir strimlar sem gefur til kynna að Kristbjörg og Aron Einar eigi von á strák.

Aron Einar greindi frá því í síðasta mánuði að von væri á öðru barni þeirra hjóna, en þau eiga sem fyrr segir soninn Óliver.

or a ? @krisjfitness

A post shared by Aron Gunnarsson (@arongunnarsson) on


Tengdar fréttir

Aron Einar og Kristbjörg eiga von á sínu öðru barni

"Það er mér mikil ánægja að tilkynna að ég og Kristbjörg eigum von á öðrum fjölskyldumeðlimi,“ segir landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson, leikmaður Cardiff, en hann og Kristbjörg Jónasdóttir, afrekskona í fitness, eiga von á sínu öðru barni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.