Kristján sá hættulegasti í Olís-deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. janúar 2018 15:00 Kristján Örn Kristjánsson. Vísir/Ernir
Fjölnismaðurinn Kristján Örn Kristjánsson er sá leikmaður í Olís-deild karla sem kom að flestum mörkum áður en deildin fór í sex vikna frí. Kristján Örn kom alls að 152 mörkum í fjórtán leikjum Fjölnis eða 10,9 að meðaltali í leik. Hann er í 2. sæti yfir flest mörk (103 - 7,4 í leik) og er svo í sjötta sæti yfir flestar stoðsendingar (49 - 3,5 í leik). Kristján Örn hélt upp á tvítugafmælið síðasta jóladag og á því sannarlega framtíðina fyrir sér í boltanum. Kristján Örn hefur tíu marka forskot á næsta mann sem er FH-ingurinn Einar Rafn Eiðsson. Einar Rafn er í 2. sæti í stoðsendingum (59 - 4,2 í leik) og í 5. sæti yfir flest mörk (83 - 5,9 í leik). Markahæsti maður deildarinnar, Selfyssingurinn Teitur Örn Einarsson, er í þriðja sæti og Framarinn Arnar Birkir Hálfdánsson er fjórði. Arnar Birkir er sá sem hefur gefið flestar stoðsendingar eftir fjórtán umferðir. Alls hafa fjórtán leikmenn náð því að koma með beinum hætti að hundrað mörkum eða meira í fyrstu fjórtán umferðunum. Selfyssingurinn ungi Haukur Þrastarson er síðastur inn í þann hóp en hann kom að akkurat 100 mörkum fyrir áramót.Leikmenn sem hafa átt þátt í flestum mörkum:(Tölur frá HBStatz úr fyrstu 14 umferðunum) 1. Kristján Örn Kristjánsson, Fjölni 152 (103+49) 2. Einar Rafn Eiðsson, FH 142 (83+59) 3. Teitur Örn Einarsson, Selfossi 139 (106+33) 4. Arnar Birkir Hálfdánsson, Fram 136 (72+64) 5. Anton Rúnarsson, Val 134 (78+56) 6. Sigurbergur Sveinsson, ÍBV 118 (67+51) 7. Ásbjörn Friðriksson, FH 114 (77+37) 8. Daníel Ingason, Haukum 112 (82+30) 9. Aron Dagur Pálsson, Stjörnunni 111 (58+53) 10. Elvar Ásgeirsson, Aftureldingu 109 (68+41) 10. Bergvin Þór Gíslason, ÍR 109 (77+32) 12. Gísli Þorgeir Kristjánsson, FH 103 (57+46) 13. Atli Már Báruson, Haukum 101 (53+48) 14. Haukur Þrastarson, Selfossi 100 (65+35) 15. Bjarni Ófeigur Valdimarsson, Gróttu 97 (66+31) 16. Breki Dagsson, Fjölni 95 (52+43) 17. Róbert Aron Hostert, ÍBV 89 (59+30)
Olís-deild karla Mest lesið „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ Fótbolti Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ Íslenski boltinn Róbert hættir með Gróttu eftir tímabilið Handbolti Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Fótbolti Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Fótbolti „Eins gott að þeir fari að fokking semja“ Körfubolti „Síðasti þriðjungur var erfiður fyrir okkur“ Fótbolti Aþena vann loksins leik Körfubolti Inter í undanúrslit Fótbolti Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Körfubolti Fleiri fréttir Róbert hættir með Gróttu eftir tímabilið Dagur skilaði sínu fyrir Montpellier sem er komið áfram Elliði Snær frábær í góðum sigri Karabatic-ballið alveg búið Haukar fara til Bosníu Íslendingaliðið með stórsigur og á góðu róli Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Átján íslensk mörk í stórsigri Kolstad Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins „Við vorum yfirspenntar“ Óðinn öflugur í sigri og Magdeburg með í toppbaráttunni Dana markahæst í tólfta sigrinum í röð Haukur markahæstur þegar Dinamo náði níu stiga forskoti Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Elliði frábær þegar Gummersbach valtaði yfir Ljónin frá Löwen Blomberg-Lippe í góðri stöðu í Evrópudeildinni „Eins besta vörn sem við höfum spilað held ég“ „Frammistaða á alþjóðamælikvarða“ Haukar flugu inn í 8-liða úrslitin Uppgjörið: Haukar - Hazena Kynzvart 27-22 | Frækin framganga Hauka dugði því miður ekki til Uppgjörið: Valur - Slavía Prag 28-21 | Valskonur skrefi nær undanúrslitum Þorsteinn Leó og félagar upp í toppsætið Uppgjör: ÍR-ÍBV 34-30 | ÍR-stelpur ekki vandræðum með Eyjakonur í Skógarselinu Vígja Mörthu í goðsagnarhöllina „Stundum reynir á samskipti okkar feðga“ Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Gömlu Haukafélagarnir í stóru hlutverki í sitt hvoru landinu Uppgjörið og viðtöl: HK - KA 33-29 | HK steig stórt skref í átt að sæti í úrslitakeppninni Sjá meira