Lífið

Litlu munaði að illa færi í tökum á Steypustöðinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Steinda og Sögu brá heldur betur.
Steinda og Sögu brá heldur betur.
Önnur þáttaröðin af Steypustöðinni fer að stað á Stöð 2 í kvöld en þættirnir voru í tökum í nokkrar vikur fyrr í vetur. Fyrsti þátturinn verður í opinni dagskrá. 

Með aðalhlutverk í þessum vinsælu grínþáttum fara þau Saga Garðarsdóttir, Steindi Jr., Auðunn Blöndal og Sverrir Þór Sverrisson.

Karakterinn Bjössi smiður mætir aftur í næstu þáttaröð en hann á mjög erfitt með að kveðja vinnufélaga sína. Saga Garðarsdóttir leikur kærustu Bjössa en undarlegt óhapp átti sér stað í Ártúnsbrekkunni fyrr í vetur þegar verið var að taka upp bílferð Bjössa og kærustunnar. Í miðri Ártúnsbrekkunni fauk húddið upp og braut framrúðuna á bílnum.

Bjössi smiður sló í gegn í fyrstu seríunni en hér að neðan má sjá atriðið sem verið var að taka upp. Það verður sýnt í þættinum í kvöld og fer Bjössi enn eina ferðina á kostum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.