Sport

Eru Katrín Tanja og Sara búnar að missa af lestinni?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrín Tanja Davíðsdóttir er á eftir sínum þriðja titli.
Katrín Tanja Davíðsdóttir er á eftir sínum þriðja titli. Mynd/Instagram/katrintanja
Fyrsti dagur heimsleikanna í CrossFit er að baki en fjórða greinin var maraþonróður í nótt.

Anníe Mist Þórisdóttir er í langbestu stöðunni af íslensku stelpunum í þriðja sætinu en staðan er ekki eins góð hjá hinum tveimur vonarstjörnunum okkar, Katrínu Tönju Davíðsdóttur og Ragnheiði Söru Sigmundsdóttur.

Anníe Mist er með 276 stig eða 62 stigum á eftir efstu konu sem er nýliðinn Laura Horvath frá Ungverjalandi. Ríkjandi meistari, Tia-Clair Toomey er síðan aðeins tólf stigum frá toppsætinu og 50 stigum á undan Anníe Mist.

Brekkan er aftur á móti farin að vera ansi brött fyrir þær Katrínu Tönju Davíðsdóttur og Ragnheiði Söru Sigmundsdóttur sem var báðum spáð mjög góðu gengi á leikunum.

Katrín Tanja Davíðsdóttir er í sjötta sætinu með 226 stig sem þýðir að hún er 100 stigum á eftir Tiu-Clair Toomey og 112 stigum á eftir Lauru Horvath. Þriðja greinin hennar var dýrkeypt en þar endaði Katrín Tanja aðeins í 36. sæti. Hún hélt sér kannski inn á topp sex en missti af dýrmætum stigum.  

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er síðan í tíunda sæti með 210 stig en hún er því 116 stigum á eftir Tiu-Clair Toomey og 128 stigum á eftir Lauru Horvath. Ragnheiður Sara hefur aldrei endaði ofar en tíunda sæti í grein til þessa en hún varð í 21. sæti í fyrstu grein og hefur verið að hækka sig hægt og rólega.

Laura Horvath er efst eftir fyrsta daginn.Instagram
Nú er það spurningin hvort þær Katrín Tanja og Sara séu hreinlega búnar að missa af lestinni. Það er vissulega nóg af greinum eftir en munurinn er orðinn afar mikill.

Anníe Mist Þórisdóttir er hinsvegar í mun betri stöðu á sínum níundu heimsleikum.  Anníe Mist stóð sig best af íslensku stelpunum í fyrra og komst þá á pall í fimmta stig með því að ná í þriðja sætið. 

Oddrún Eik Gylfasóttir er að keppa á sínum fyrstu heimsleikum og er að ná sér í mjög dýrmæta reynslu. Það bjóst enginn við henni í toppbaráttunni á sínu fyrsta móti. Hún er núna í 28. sæti.

Stelpurnar fá nú einn hvíldardag til að jafna sig eftir þennan rosalega miðvikudag sem var sá erfiðasti í sögu heimsleikanna í CrossFit. 

Þrjár greinar eru framundan á föstudaginn og þar þurfa þær Katrín Tanja Davíðsdóttir og Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir að eiga frábæran dag ætli þær sér að vera með í baráttunni um titilinn hraustasta kona heims í ár. 

Ef við vitum samt eitthvað um þær þá er það að þær gefast aldrei upp. Það er því ekki hægt að afskrifa það að þær komi sterkar til baka á næstu dögum.


Tengdar fréttir

Katrín Tanja þriðja í fyrstu grein

Katrín Tanja Davíðsdóttir byrjaði best af íslensku stelpunum á heimsleikunum í CrossFit en hún náði þriðja sætinu í fyrstu grein heimsleikanna sem hófust í dag í Madison í Wisconsin-fylki í Bandaríkjunum.

Sara: Katla er ein efnilegasta konan í crossfit-heiminum í dag

Ísland á ekki aðeins keppendur í fullorðinsflokki á heimsleikunum í crossfit sem hefjast í dag í Madison í Bandaríkjunum. Þrír Íslendingar keppa einnig í unglingaflokki á mótinu og þar á meðal er Íslandsmeistarinn sjálfur.

Sara er hugrakkasti íþróttamaðurinn sem ég hef unnið með

Phil Mansfield, nýr þjálfari íslensku crossfitstjörnunnar Ragnheiðar Söru Sigmundsdóttur, talar ekki vel um þær kringumstæður sem Sara hafur verið í undanfarin ár og ekki fá gömlu þjálfararnir hennar heldur góða einkunn hjá honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×