Lífið

Þórir og Gyða gerðust túristar í einn dag

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtileg tilraun hjá þessum flottu keppendum.
Skemmtileg tilraun hjá þessum flottu keppendum.
Þau Þórir Geir og Gyða Margrét sem syngja eitt af þeim tólf lögum sem keppa í Söngvakeppninni í ár um að verða framlag Íslands í Eurovision voru að gefa út myndband við lagið sitt Brosa.

Myndbandið var tekið upp á Suðurlandi og spila Gullfoss og Geysir meðal annars stórt hlutverk í því.

„Hugmyndin var að gerast túristar í okkar eigin landi í einn dag og heimsækja nokkrar af fallegustu náttúruperlum Suðurlands. Það var eimmitt mjög fyndið að áður en við héldum af stað stoppuðum við til að taka bensín og hittum þar rútu fulla af túristum sem voru að fara á nákvæmlega sömu staði og við þannig við vorum strax búin að eignast fullt af vinum þarna kl 07:30 um morguninn,“ segir Þórir Geir.

„Svo áttum við eftir að hitta nýju vini okkar aftur og aftur yfir daginn og enduðum svo með að borða með þeim á Geysi.“

„Það var ótrúlega skemmtileg upplifun að taka upp myndband í svona mikilli fegurð og erum við virkilega ánægð með útkomuna. Við vonum svo auðvitað að myndbandið fái fólk til að brosa sem er eimmitt boðskapur lagsins,“ segir Gyða Margrét en mikil spenna er í hópnum sem mun flytja lagið Brosa á fyrra undankvöldinu þann 10.Febrúar.

Höfundar lags og texta eru þeir Guðmundur Þórarinsson og Fannar Freyr Magnússon. Bassi Ólafsson sá um hljóðblöndun @Stúdíó Tónverk.

Hér að neðan má sjá myndband þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.