Lífið

Miley Cyrus barði Jimmy Kimmel í punginn með sleggju

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kimmel fékk að finna fyrir því.
Kimmel fékk að finna fyrir því.
Söngkonan Miley Cyrus kom bandaríska spjallþáttastjórnandanum Jimmy Kimmel heldur betur á óvart á dögunum þegar hún vakti hann um miðja nótt með því að ráðast inn í svefnherbergið með sleggju.

Söngkonan var mætt í múnderinguna sem hún klæddist í myndbandinu við lagið Wrecking Ball og barði Kimmel sjálfan með sleggju sem var í raun úr plasti. Það fór reyndar ekki betur en svo að hún barði kappann óvart í punginn.

Þrátt fyrir að sleggjan sé ekki ekta þá var þetta augljóslega sársaukafullt.

Rihanna byrjaði í raun þessa hefð, að vekja Kimmel um miðja nótt og síðan tók Britney Spears við. Hér að neðan má sjá þessa þrjá hrekki.

Rihanna vekur Kimmel

Britney Spears vekur Kimmel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.