Lífið

Obama hjónin í góðum gír á Beyoncé tónleikum

Bergþór Másson skrifar
Obama hjónin.
Obama hjónin. Vísir/Getty
Hjónin Barack og Michelle Obama voru viðstödd tónleika hjónanna Beyoncé og Jay-Z í Maryland, Bandaríkjunum í gær.

Obama hjónin voru augljóslega í góðum gír eins og má sjá á myndböndum sem tónleikagestir náðu af þeim.

Hjónin Beyoncé og Jay-Z eru eins og stendur á tónleikaferðalaginu „On The Run II“ um Bandaríkin eftir að hafa túrað um alla Evrópu í byrjun sumars.

Michelle Obama er greinilega mikill aðdáandi hjónanna en þetta er í annað sinn sem hún sést á tónleikum þeirra í sumar.

 
Yassss Mrs. O

A post shared by Baller Alert (@balleralert) on Jul 15, 2018 at 6:38pm PDT

Michelle var viðstödd tónleika þeirra hjóna í París, sama dag og Frakkland vann Heimsmeistaramótið.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.