Stjarnan hefur unnið níu leiki í röð frá innrás Arnars Guðjónssonar þjálfara inn á völlinn í leik á móti KR í byrjun desembermánaðar.
Sjá einnig:Þjálfari Stjörnunnar gekk trylltur inn á völlinn í miðjum leik
Karlalið Stjörnunnar hélt sigurgöngu sinni áfram í Domino´s deildinni í körfubolta í gærkvöldi og er nú búið að koma sér inn í baráttuna um deildarmeistaratitilinn við Njarðvík og Tindastól.
Útlitið var hins vegar ekki bjart í Garðabænum í upphafi desember þegar liðið tapaði þremur leikjum í röð og byrjaði illa á heimavelli í þeim fjórða. Eitthvað þurfti að gera og óvenjulegt útspil Arnars Guðjónssonar þjálfara bar heldur betur árangur.
Sjá einnig:Ingi: Fíaskóið hjá Arnari var klókt
Allt breyttist þetta í lok fyrsta leikhluta í Ásgarði 9. desember síðastliðinn þegar Stjarnan tók á móti Íslandsmeisturum KR í stórleik umferðarinnar sem var í beinni á Stöð 2 Sport.
Stjörnumenn voru eins og áður sagði búnir að tapa þremur leikjum í röð fyrir KR-leikinn og byrjunin á honum var það slæm að hún fékk þjálfara Stjörnumanna til að strunsa inn á miðjan völl í miðjum leik til að mótmæla að því virtist dómgæslunni. Dómararnir ráku hann hins vegar ekki út heldur gáfu honum aðeins tæknivíti.
Sjá einnig:Körfuboltakvöld um innrás Arnars: „Kom mér á óvart að þetta skyldi bara vera tæknivilla“
Arnar hefur margspurður um hvað hann var að hugsa en hefur ekki viljað svara. Honum tókst aftur á móti að kveikja á sínu liði og það hefur ekki slokknað á því síðan.
Þegar Arnar hljóp inn á miðjan völlinn var staðan 24-18 fyrir KR og þeir komust síðan í 25-18 eftir að hafa nýtt vítaskotið sem þeir fengu í kjölfarið á tæknivítinu. Stjörnuliðið vann restina á leiknum 77-59 og hefur ekki litið til baka eftir það.
Sigurinn á Keflavík í gærkvöldi var níundi sigur Stjörnunnar í röð í öllum keppnum.
Sjá einnig:Arnar vildi ekki ræða atvikið ótrúlega í leikslok
9. desember var Stjarnan í -25 í þremur síðustu deildarleikjum sínum og einum leikhluta að auki. Síðan þá eru Stjörnumenn búnir að vinna 353 mínútur með 146 stigum, 862-716.
Leikir Stjörnunnar frá innrás þjálfarans 9. desember
11 stiga sigur á KR í deild (95-84)
7 stiga sigur á Grindavík í deild (99-92)
15 stiga sigur á Hamar í bikar (104-89)
11 stiga sigur á Haukum í deild (100-89)
23 stiga sigur á ÍR í deild (106-83)
29 stiga sigur á Breiðabliki í deild (102-73)
14 stiga sigur á Skallagrími í deild (94-80)
13 stiga sigur á Tindastól í bikar (81-68)
16 stiga sigur á Keflavík í deild (99-83)
Innrás Arnars þjálfara kveikti á Stjörnuliðinu
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið






Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu
Enski boltinn

Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham
Enski boltinn


Sigurlíkur Liverpool minnkuðu
Fótbolti

Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli
Enski boltinn