Lífið

Grínaðist með Trump við mis­jafna hrifningu ferða­manna

Sylvía Hall skrifar
Daily Dinkus klæddi sig upp í tilefni dagsins.
Daily Dinkus klæddi sig upp í tilefni dagsins. Skjáskot
YouTube-notandinn Daily Dinkus ferðast um heiminn og fagnar furðulegum alþjóðlegum hátíðisdögum. Í sumar hefur hann til að mynda ferðast um Evrópu og haldið upp á alþjóðlegan dag bikinísins, sundlauga, hjólreiða og nektar.

Þann 11. ágúst var alþjóðlegur dagur forsetabrandara og vildi svo til að Daily Dinkus var staddur hér á landi, nánar tiltekið í miðbæ Reykjavíkur þar sem hann ákvað að halda upp á daginn. Hann gekk á milli fólks í miðbænum og sagði misgóða brandara um Donald Trump Bandaríkjaforseta.

Af hverju notar Donald Trump gulllitaðan tússpenna þegar hann skrifar ræður sínar? Hver er munurinn á sólinni og Donald Trump? Hvernig býrðu til Trump-borgara? Svör við þessum spurningum má finna í myndbandinu hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.