Lífið

Sóli og Viktoría eignuðust stúlku

Sylvía Hall skrifar
Sóli Hólm og Viktoría hafa verið par frá árinu 2016.
Sóli Hólm og Viktoría hafa verið par frá árinu 2016. Fréttablaðið/Stefán/Ernir
Fjölmiðlaparið Sóli Hólm og Viktoría Hermannsdóttir eignaðist stúlku aðfaranótt 29. mars. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu Sóla. 

„Það hlaut að koma að því!“ skrifar Sóli en stúlkan var tæplega 16 merkur og 51 sentimetri. Stúlkan lét bíða lengi eftir sér en var svo fljót í heiminn þegar að því kom og tók fæðingin aðeins klukkutíma eftir að parið mætti upp á fæðingardeild. 

„Það var eins og hún væri með samviskubit yfir því að hafa látið móður sína ganga svona langt fram yfir settan dag og vildi bæta henni það upp.“

Fjölskyldan er himinlifandi með nýjustu viðbótina en fyrir eiga þau þrjú börn, Sóli tvo drengi og Viktoría eina stúlku.


Tengdar fréttir

„Hefði ekki viljað hafa neinn annan með mér í þessu“

Síðastliðinn áratug hefur Sólmundur Hólm Sólmundarson starfað sem skemmtikraftur og heillað þjóðina upp úr skónum. Árið 2017 greindist Sóli með eitlakrabbamein og við tók heljarinnar barátta við meinið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.