Lífið

Mikilvægt að byrja kynfræðslu fyrr: „Er ekki að tala um að setja smokkinn á eitthvað tréskaft“

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Við erum að pína börn þegar þau eru lítil til að knúsa fólk sem þau langar ekki að knúsa, sem á að vera kurteisi – en oft er bara verið að fara yfir mörk krakkanna. Við erum að pína þau til að hleypa fólki yfir mörkin sín, en svo erum við að reyna að kenna þeim að þau megi setja mörk þegar þau eru orðin eldri.“

Þetta segir Andrea Marel, sem ásamt Kára Sigurðssyni myndar fræðsluteymið Fokk Me-Fokk You. Saman fræða þau bæði hópa ungmenna og foreldra um heilbrigð samskipti á netinu og öllum þeim samskiptamiðlum sem þar þrífast. Bæði hafa þau mikla reynslu af vinnu með ungu fólki í félagsmiðstöðvum í Reykjavík og segja talsvert um að kynferðisleg áreitni þrífist á miðlum á borð við Snapchat og Instagram. Gerendurnir séu oft ungir og átti sig jafnvel ekki á því að þeir séu að brjóta á öðrum.

Gróf kynferðisleg skilaboð

Nýlega var rætt við Sólborgu Guðbrandsdóttur í Íslandi í dag á Stöð 2, en hún heldur úti Instagram-vefnum Fávitar, þar sem finna má skjáskot af brengluðum kynferðislegum skilaboðum sem berast gegnum samfélagsmiðla, en meirihluti þolendanna eru ungar stelpur.

Andrea og Kári segjast margoft hafa séð sambærileg skjáskot í sínu starfi og telja mikilvægt að kynfræðsla af einhverju tagi hefjist strax snemma á barnsaldri, þar sem m.a. er farið yfir mikilvægi þess að setja sér mörk og virða mörk annarra.

„Fólk heyrir orðið kynfræðsla og þá taka sumir andköf og bara „barnið mitt að fá kynfræðslu í fjórða bekk?“. Það er ekki verið að tala um að setja smokkinn á eitthvað tréskaft, heldur er verið að tala bara um mörk og samskipti kynjanna,“ segir Kári.

Rætt verður við þau Andreu og Kára í Íslandi í dag klukkan 18:55, strax eftir kvöldfréttir. Þar ræða þau m.a. hvernig gott er að foreldrar nálgist ungmenni sín þegar kemur að sístækkandi heimi samfélagsmiðla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.