Lífið

Nýr kærasti Noregsprinsessu vék sér fimlega undan aðgangshörðum spurningum á Íslandi

Birgir Olgeirsson skrifar
Durek Verrett, Sölvi Tryggvason og Brynjar Örn Ellertsson á pallborðsumræðum árið 2016.
Durek Verrett, Sölvi Tryggvason og Brynjar Örn Ellertsson á pallborðsumræðum árið 2016. Vísir
Brynjar Örn Ellertsson, lífefnafræðingur og félagi í Vantrú, hefur ekki mikið álit á nýjum kærustu norsku prinsessunnar. Märtha Louise birti mynd af sér og kærasta sínum, Durek Verrett, á Instagram um liðna helgi. Sagðist Louise vera yfir sig ástfangin og alveg sama hvað öðrum finnst um það.

Durek þessi heimsótti Ísland árið 2016 í boði Tveggja heima þar sem hann tók þátt í pallborðsumræðum. Brynjar Örn var fulltrúi Vantrúar í þeim pallborðsumræðum en Durek sagðist njóta aðstoðar ýmiskonar anda annarra heima við að laga vandamál fólks.

„Ég veit fyrir víst að hann var að hringa í krabbameinssjúka eiginkonu vinar míns og bjóðast til að taka hana í skoðun fyrir 50 þúsund krónur,“ segir Brynjar um Durek. „Hann var að reyna að heila fatlaða stelpu sem var á þessum fundi. Sagðist geta læknað hana,“ sagði Brynjar.

Hægt er að sjá brot úr þessum pallborðsumræðum í meðfylgjandi myndbandi.

Brynjar segist hafa gagnrýnt Durek því hann sagðist geta læknað sjúkdóma. Brynjar reyndi að fá út úr Durek hvernig hann færi að því að lækna fólk en Brynjar segir Durek hafa vikið sér fimlega undan flestum spurningunum.

„Hann er undarlegur maður. Kristilegur Shaman, sem talar við engla,“ segir Brynjar. Lengi vel var að finna á heimasíðu Durek að hann hefði erft töfralækningahæfileika sína frá ömmu sinni og gæti þannig talað við góða og illa anda.

Í dag virðist Durek hafa hreinsað netslóð sína nokkuð vandlega að sögn Brynjars og margar greinar og myndbönd horfin sem áður voru aðgengileg.


Tengdar fréttir

Læknar með hjálp andanna

Seiðskrattinn Shaman Durek kom til Íslands til að hjálpa fólki í veikindum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.