Lífið

Frá Como í fossana á Suðurlandi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Stjörnuparið Rúrik og Nathalia við Como-vatn um helgina. Þau höfðu fataskipti áður en þau hlupu bak við íslenska fossa á Suðurlandinu.
Stjörnuparið Rúrik og Nathalia við Como-vatn um helgina. Þau höfðu fataskipti áður en þau hlupu bak við íslenska fossa á Suðurlandinu. Instagram/@rurikgislason
Lúsmý sem hrellt hefur landsmenn á suðvesturhorninu undanfarna daga virðist ekki hafa ná til ofurparsins Rúriks Gíslasonar og Nathaliu Soliani. Landsliðsmaðurinn og brasilíska fyrirsætan og kærasta hans eru komin til baka úr brúðkaupi Alexöndru Helgu Ívarsdóttur og Gylfa Þórs Sigurðssonar sem fram fór við Como vatn á Ítalíu á laugardaginn.

Rúrik og Nathalia eiga það sameiginlegt að njóta mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum og miðla því sem á daga þeirra drífur. Í gær rúntuðu þau um Þjóðveg 1 austur fyrir fjall og var greinilegt að Nathalia var heilluð af íslensku lúpínunni.

Rúrik sat við stýrið og bauð meðal annars upp á íslenskt rapp og var stoppað hjá helstu kennileitum. Má nefna Seljalandsfoss þar sem gengið var aftur fyrir fossinn eins og lög gera ráð fyrir. Í framhaldinu var farið að hinum minna þekkta Gljúfrabúa þar sem Nathalia hló að Rúriki sem tókst ekki áfallalaust að stikla á steinum.

Þau slökuðu svo á í heita pottinum á Hótel Rangá þar sem þau virðast hafa gist í nótt. Nathalia er í rómantískum gír og segir Ísland hafa stolið hjarta sínu í annað skiptið. Er hún væntanlega að vísa til þess að Rúrik hafi gert það í fyrsta skiptið.



 
 
 
View this post on Instagram
Oh well ...Iceland stole my heart once , guess now one more time #SWIPE

A post shared by NATHALIA SOLIANI (@nathaliasoliani_) on Jun 17, 2019 at 4:21pm PDT






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.