Gerður leggur skóna á hilluna sem þrefaldur meistari Tómas Þór Þórðarson skrifar 16. maí 2019 13:30 Gerður Arinbjarnar er hætt í handbolta. vísir/vilhelm
Gerður Arinbjarnar, varnarmaðurinn öflugi í liði Íslands, deildar- og bikarmeistara Vals, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og hætta í handbolta. Frá þessu er greint á Facebook-síðu Valsmanna en Gerður stóð vaktina í hjarta varnarinnar hjá Valsliðinu í vetur sem vann alla þrjá titlana sem í boði eru. Liðið vann deildina, bikarinn og sópaði úrslitakeppninni, 6-0. Gerður myndaði ótrúlega sterka miðjublokk í Valsliðinu ásamt Önnu Úrsúlu Guðmundsdóttur en Gerður var með 4,1 löglega stöðvun að meðaltali í leik og var í áttunda sæti yfir varnareinkunn í Olís-deild kvenna í vetur. Hún er uppalin í HK en kom til Vals árið 2016 og kveður nú Hlíðarenda og íslenska handboltann sem þrefaldur meistari. Gerður er þriðji leikmaðurinn sem Ágúst Jóhannsson missir eftir tímabilið en áður hafði verið greint frá því að eistneska skyttan Alina Molkova og þýski markvörðurinn Chantal Pagel væru farnar frá Val.
Mest lesið Líbönsk landsliðskona lífshættulega slösuð eftir árás Ísraelsmanna Fótbolti Lélegasta landslið heims fékk flestar heimsóknir eftir sögulegan sigur Fótbolti X eftir landsleikinn: Skiptar skoðanir um Hareide og hettan hans Bellamy Fótbolti Eldræða Lárusar Orra: Þurfum ferskan þjálfara inn með ástríðu Fótbolti „Mikilvægt að sýna fólki að ég er ekki brjálæðingur“ Fótbolti Einkunnir Íslands: Vafasöm varnarlína Fótbolti Neymar getur tekið bílinn með sér upp í nýju þakíbúðina Fótbolti „Leikplan sem við vorum ekki alveg tilbúnir í“ Fótbolti Liðin sem fóru upp í A-deild og liðin í umspilinu með Íslandi Fótbolti „Eigum ekki að setja sálfa okkur í þessa stöðu“ Handbolti Fleiri fréttir „Eigum ekki að setja sálfa okkur í þessa stöðu“ „Bara svona skítatilfinning“ Kemur liðsfélaga sínum til varnar: „Einn af uppáhaldsgaurunum mínum“ Tvö Íslendingalið áfram með fullt hús í Evrópudeildinni FH náði aðeins betri úrslitum á móti Gummersbach í þetta skiptið Uppgjör: Valur - Vardar 34-34 | Víti þegar leiktíminn var liðinn felldi Val Ásbjörn leikgreinir Gummersbach Valskonur til Málaga en Haukar mæta liði frá Úkraínu Snorri búinn að velja mennina sem mega spila á HM Blær var uppeldisfélaginu erfiður í kvöld Framarar flugu í átta liða úrslitin á gamla heimavellinum Með tvo syni í útlöndum og vildi mann með nýja orku Ágúst tekur við af Óskari hjá Val KA sótti sigur á Ísafjörð og Stjarnan þurfti framlengingu Haukar áfram eftir spennuleik Haukar hentu Eyjamönnum út úr bikarnum Lærisveinar Rúnars með góðan sigur Orri Freyr og félagar áfram á toppnum Íslendingarnir áfram á toppnum eftir sigur á Magdeburg Öruggt hjá liði Díönu Daggar og Andreu í Evrópuslag Íslendingaliðanna Góður endasprettur tryggði Haukum fína stöðu Pick Szeged hafði betur í toppslag Íslendingaliðanna Þorsteinn Leó markahæstur og stórsigur hjá strákunum hans Gumma Frækinn sigur Vals í Kristianstad Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Sjá meira