Lífið

Gói og Ingibjörg eignuðust sitt þriðja barn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gói og Ingibjörg saman með börnunum á frumsýningu árið 2017. Með þeim á myndinni má sjá Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir.
Gói og Ingibjörg saman með börnunum á frumsýningu árið 2017. Með þeim á myndinni má sjá Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir. VÍSIR / ANTON BRINK
Hjónin Guðjón Davíð Karlsson, betur þekktur sem Gói, og Ingibjörg Ýr Óskarsdóttir, ljósmóðir, eignuðust dreng í vikunni en Gói greinir frá þessu á Facebook.

Drengurinn var 15 merkur og hefur fengið nafnið Ari Steinn. Gói segir í færslu sinni á Facebook að hann sé fullkominn.

Gói og Ingibjörg giftu sig fyrir tíu árum og áttu tíu ára brúðkaupsafmæli 22. ágúst síðastliðinn. 

Saman áttu þau fyrir einn son og eina dóttir og er nú fjölskyldan orðin fimm manna í dag. Síðast eignuðust hjónin barn árið 2011. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.