Lífið

Finnst skemmtilegast að elda og ferðast

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Ingibjörg er stoltust af því hve systurdóttir hennar lítur upp til hennar.
Ingibjörg er stoltust af því hve systurdóttir hennar lítur upp til hennar.
Miss Universe Iceland 2019 fer fram í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ 31. ágúst og verður keppnin í beinni útsendingu hér á Vísi. Alþjóðleg dómnefnd velur þar fulltrúa Íslands sem tekur síðan þátt í Miss Universe en ekki hefur verið staðfest hvar eða hvenær sú keppni fer fram.

Ingibjörg Gróa Gunnarsdóttir er einn keppenda Miss Universe Iceland. Ingibjörg vinnur við umönnun á sambýli en hún ætlar að læra viðskiptastjórnun. Hún elskar að elda, ferðast og hreyfa sig. Lífið tók Ingibjörgu á tal:

Morgunmatur?

Banana froosh eða linsoðið egg

Helsta freisting?

Vesturbæjarís!

Hvað ertu að hlusta á ?

James Bay, Ed Sheeran eða Lewis Capaldi, Það er bara eitthvað við breska karlmenn með gítar að syngja..

Hvað sástu síðast í bíó?

Aladdin með stelpunum í Miss Universe Iceland

Hvaða bók er á náttborðinu?

Þær eru fjórar sem ég gríp alltaf reglulega í: Lífsgleðin njóttu eftir Dale Carnigy, Unfuck yourself eftir Gary John Bishop og The subtle art of not giving a fuck eftir Mark Manson.

Hver er þín fyrirmynd?

Lilja systir hennar mömmu.

Hvað ætlarðu að gera í sumarfríinu?

Ég ætla í viku til Akureyrar með fjölskyldunni annars er ég að vinna en ætla reyna njóta inn á milli vakta

Uppáhaldsmatur?

Úff! Ég er svo mikill matargæðingur að það er erfitt að velja eitt, En þessa stundina er ég með æði fyrir kjúklingabringum grillaðar í Caj P grillolíu, sætkartöflumús og gott salat on the side. Algjört lykilatriði í salatinu er fetaostur, döðlur og ristaðar furuhnetur



Uppáhaldsdrykkur?

Kristall með Mexican Lime bragði ( helst í dós)

Hver er frægasta persóna sem þú hefur hitt?

Lady Gaga

Hvað hræðistu mest?

Að missa ástvin

Neyðarlegasta atvik sem þú hefur lent í ?

Ég hef eflaust verið um 13 ára þegar ég var að koma úr sturtu, var kominn í náttföt að neðan en ber að ofan þegar systir mín dinglar bjöllunni. Ég ákvað nú að skemmta henni smá og stekk fram á stigapallinn (enn ber á ofan) og á sama tíma og ég kem hoppandi fram á stigagang ákvað ég að hrista á mér axlirnar sem eitthvað svaka dansspor. Hins vegar var hún ekki ein á ferð og var vinur hennar með. Hann hlær enn að svipnum á mér þegar ég sá að hann var með.



Hverju ertu stoltust af?

Hvað Elíana systurdóttir mín lítur upp til mín í einu og öllu.

Hefurðu einhvern leyndan hæfileika?

Ekki sem ég man eftir í fljótu bragði

Hundar eða kettir?

Hundar!

Hvaða er það leiðinlegasta sem þú gerir?

Að vera föst í umferð

En það skemmtilegasta?

Að ferðast, bæði innanlands og utanlands

Hverju vonastu til að Miss Universe skili þér?

Góðri reynslu og betra sjálfstrausti bæði í framkomu og samskiptum.

Hvar sérðu þig eftir 5 ár?

Vonandi heilbrigð og hamingjusöm að stofna fjölskyldu.

Lífið kynnir á næstu dögum keppendur til leiks í Miss Universe Iceland 2019. Keppnin fer fram í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ 31. ágúst og verður í beinni útsendingu hér á Vísi. Alþjóðleg dómnefnd velur þar fulltrúa Íslands sem tekur síðan þátt í Miss Universe.

Hér fyrir neðan má taka þátt í kosningunni Val fólksins.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.