Lífið

Nýársspá Siggu Kling

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlegra vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir nýja árið má sjá hér fyrir neðan.

Sigga leggur áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýti sér orkuna, klappi sér á bakið og elski lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.

Sigga Kling verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi klukkan 14:00 í dag og geta lesendur sent inn spurningar í athugasemdarkerfinu hér að neðan. Hægt verður að spyrja Siggu um allt á milli himins og jarðar.

Sigga býður upp á þjónustunámskeið fyrir fyrirtæki af öllum toga: Hópefli – hressingarfyrirlestur sem getur verið hentugur í hádegishlé eða í byrjun vinnudags. Einnig tekur hún að sér hópa sem vilja eiga jákvæða og gleðilega kvöldstund. Þeir sem hafa áhuga gefa haft samband við Siggu með því að senda tölvupóst á siggakling@gmail.com.


Tengdar fréttir

Nýársspá Siggu Kling – Nautið: Þú átt það svo skilið að búa í höll

Elsku Nautið mitt, það er að ganga í garð bæði spennandi og óvenjulegt ár, þú finnur kraftinn streyma til þín strax í byrjun janúar, tekur ákvarðanir sem þú stendur ótrauður við, og ef þú værir á veðhlaupabraut myndir þú veðja á réttan hest nákvæmlega í janúar eða febrúar, það er tíminn til að spenna bogann hærra en þú bjóst við og þú skýtur jafnvel hærra en þú miðaðir á.

Nýársspá Siggu Kling – Tvíburinn: Þú færð stöðuhækkun seinnipart árs

Elsku Tvíburinn minn, það fer nú oft í taugarnar á þér svona óveður og svartnætti eins og er oft á landinu okkar góða, en það er eins og þú sért búinn að koma þér upp tækni til að útiloka veðrið og myrkrið og eins er mjög mikilvægt þú útilokir svartsýni því hún veldur bara kvíða.

Nýársspá Siggu Kling – Fiskurinn: Púslin raðast upp í sumar

Elsku Fiskurinn minn, þér gæti fundist þú vera andsetinn svo margt er búið að fara í taugarnar á þér, gera þig pirraðan og koma þér í tilfinningalegt ójafnvægi. Þessi orka mun svo aldeilis breytast núna í janúar, því þú veist alveg hvernig þú ferð að því að henda álaginu af þér og taka lífinu léttar.

Nýársspá Siggu Kling – Ljónið: Fyrstu mánuðir ársins bjóða upp á ástina

Elsku hjartans besta Ljónið mitt, eins og þú hefur dásamlega útgeislun sem svo inniilega hjálpar öðrum til að slaka á og allir halda þú sért kóngur eða drottning, líta upp til þín og hreinlega dá þig detturðu samt svo oft í þá gryfju að enginn elski þig og þér finnst þú vera að hrapa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.