Lífið

Frikki Dór og Steindi lokuðu stórtónleikunum með trompi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frikki og Steindi hafa unnið töluvert saman.
Frikki og Steindi hafa unnið töluvert saman.
Friðrik Dór Jónsson stóð fyrir stórtónleikum í Kaplakrika í október og báru þeir nafnið Í síðasta skipti í höfuðið á laginu vinsæla.

Tónleikarnir voru sýndir í heild sinni á Stöð 2 í gærkvöldi og má með sanni segja að þeir hafi heppnast einstaklega vel.

Fjölmargir gestalistamenn komu fram á sviðinu og var einn af þeim Steindi Jr. en hann lokaði tónleikunum ásamt Frikka Dór með því að taka þrjú mjög vinsæl lög sem þeir koma við sögu saman í.

Hér að neðan má sjá þegar Frikki og Steindi gerðu allt vitlaust í Kaplakrika í október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.