Lífið

Konan sem Rybak söng um í Fairytale vill komast í Eurovision

Birgir Olgeirsson skrifar
Alexander Rybak á sviði.
Alexander Rybak á sviði. Vísir/Getty
Norska tónlistarkonan Ingrid Berg Mehus tekur þátt í undankeppni Noregs fyrir söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision. Ingrid er 31 árs gömul en hún ólst upp í Jessheim og fékk sína fyrstu fiðlu sjö ára gömul og fer í hóp fjölda norskra listamanna sem hafa leikið á fiðlu í undankeppninni þar í landi. Á undanförnum árum hefur hún leikið poppskotna tónlist en hefur fært sig nær klassíska upprunanum síðastliðin ár. 

Greint er frá því á vef norska ríkisútvarpsins NRK að Ingrid hafi eitt sinn verið kærasta Alexander Rybak sem vann Eurovision árið 2009 með lagið Fairytale. Norskir fjölmiðlar greindu frá því árið 2009 að lagið væri um Ingrid en þau voru kærustupar þegar þau voru á sama tíma við nám í tónlistarskólanum Barrat Due Institute of Music í Osló.

Hefur Rybak staðfest þetta sjálfur. 

Hægt er að heyra lagið Feel sem Ingrid flytur í keppninni hér.

Keppendurnir í norsku undankeppninni eru: 

  • DSound
  • Chris Medina
  • Carina Dahl
  • Anna-Lisa Kumoji
  • Foreign Bratland
  • Adrian Jørgensen
  • KEiiNO
  • Kjetil Mørland
  • Ingrid Berg Mehus
  • Hank von Hell





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.