Lífið

Arnold bauð Fjallinu í kvöldmat og kósí

Arnold hefur í gegnum tíðina ekki þótt nein smásmíði en hann virkar þó eins og meðalmaður við hlið Hafþórs og Joes
Manganiello sem er stór og sterkur strákur líka. Félagarnir höfðu það huggulegt á heimili leikarans.
Arnold hefur í gegnum tíðina ekki þótt nein smásmíði en hann virkar þó eins og meðalmaður við hlið Hafþórs og Joes Manganiello sem er stór og sterkur strákur líka. Félagarnir höfðu það huggulegt á heimili leikarans. MYND/INSTAGRAM
Kraftakarlinn ógurlegi Hafþór Júlíus Björnsson lagði góðu málefni lið um helgina þar sem hann sýndi mátt sinn á sérstakri kraftasýningu Arnolds Schwarzen­egger í Kaliforníu.

Samkvæmt Instagram-síðu Hafþórs flaug hann til Los Angeles fyrir helgi í boði Arnolds sem setti sýninguna á fót til að safna fé fyrir slökkviliðsmenn sem háð hafa hetjulega baráttu við gríðarlega skógarelda í ríkinu síðustu vikur. Kraftakeppnin fór fram á hinni þekktu Santa Monica Pier.

Hafþór Júlíus greindi frá ferðalagi sínu á Instagram fyrir helgi og fékk þá kæra kveðju frá Schwarzenegger sjálfum sem kvaðst hlakka til að sjá hann.

Eftir að hafa svitnað fyrir slökkviliðsmennina fengu Hafþór og eiginkona hans heimboð frá Arnold sjálfum ef marka má Instagram-síðu vöðvatröllsins. Þar situr Hafþór fyrir á mynd með Arnold og leikaranum íturvaxna Joe Manganiello og þakkar átrúnaðargoðinu fyrir góða veislu, kvöldmat og UFC-áhorf.

„Frábært kvöld með vinum í gær,“ skrifar Hafþór við Instagram-færslu sína á sunnudag.

„Þakka þér Schwarzenegger fyrir að bjóða mér og eiginkonu minni á þitt fallega heimili.“ Færsluna merkir Hafþór svo með myllumerkjunum #Dinner og #UFC.

Hafþór verður sem fyrr í hlutverki Fjallsins í lokaseríu Game of Thrones sem væntanleg er og beðið er með mikilli eftirvæntingu.

Hann upplýsti það í samtali við Mashable á dögunum að hann hefði í fyrsta sinn þurft að fá áhættuleikara fyrir sig. Ljóst er að það hleypur enginn svo glatt í skarðið fyrir hinn risavaxna Hafþór.

„Hann er stór og hávaxinn, ekki eins massaður en mjög hávaxinn,“ er haft eftir Hafþóri.

Mikil leynd hvílir yfir öllum tökum þáttaraðarinnar en breska blaðið Metro segir að sum atriðin sem staðgengillinn leysti Hafþór af í hafi hreinlega verið svo krefjandi að hann hafi ekki mátt leika þau. Hingað til hefur Hafþór leikið öll sín eigin bardagaatriði, svo vænta má að tekið verði á því núna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.