God Eater 3: Ódýrari útgáfa af Monster Hunter Samúel Karl Ólason skrifar 8. febrúar 2019 12:45 Það er óhjákvæmilegt að bera God Eater 3 saman við Monster Hunter World en í þeim samanburði kemur GE3 ekkert allt of vel út.
God Eater 3 er frekar undarlegur leikur þar sem fáklæddir unglingar berjast við stærðarinnar skrímsli með vopnum sem eru stærri en þau sjálf. Hann svipar mikið til Monster Hunter en er ekki jafn góður þó hann sé skemmtilegur. Leikurinn gerist í Anime-söguheimi þar sem verur sem kallast Aragami hafa lagt undir sig mest allan heiminn og nánast eytt mannkyninu. Aðeins nokkrir aðilar geta borið vopn sem geta grandað þessum skrímslum og kallast þeir Adaptive God Eaters eða AGE. Spilarar setja sig í hlutverk slíkrar persónu og berjast við skrímslin í rústum heimsins.Það er óhjákvæmilegt að bera God Eater 3 saman við Monster Hunter World en í þeim samanburði kemur GE3 ekkert allt of vel út. Það er erfitt að segja að grafíkin sé endilega verri en hún er öðruvísi. Spilunin er samt verri og leiknum tókst ekki að fanga mig nægilega vel. Það er þó svo ógeðslega mikið af valmyndum í þessum leik og hlutum til að fylgjast með. Á milli borða getur farið allt of mikill tími í það að stússast með eigin inventory og sömuleiðis hjá öðrum persónur sem fylgja mann í orrustu. Þetta er þó ekki jafn mikið og það var í MHW en maður þarf að gera það oftar. Fyrir hvert hvert verkefni þarf maður að skoða hvaða vopn maður er með, hvort hægt sé að uppfæra þau og margt fleira. Þetta þarf líka að gera fyrir þær persónur sem fylgja manni og getur tekið leiðinlega langan tíma. Þetta tekur stundum lengri tíma en verkefnið sjálft. Ég veit ekki af hverju en leikurinn notast mikið við sömu svæðin. Maður er alltaf að berjast við sömu skrímslin á sama svæðinu, sem er undarlegt. Hvert verkefni er svo hægt að spila aftur til að fá fleiri og betri hluti til að smíða fleiri og betri vopn. Sem sagt: Grind. Bölvað grind.Bardagar leiksins eru hraðir og skemmtilegir. Maður hefur hins vegar enga tilfinningu fyrir því hvernig þeir ganga, né fyrir því hvort maður sé í raun að gera einhvern skaða. Skjárinn er allur út í einhverjum ljósum og hasarinn getur verið of mikill fyrir minn smekk. Þá átti ég í miklum erfiðleikum með að átta mig á stjórn leiksins. Hvaða takkar gerðu hvað og hvernig. Leikurinn hjálpaði mér lítið sem ekkert. Þetta myndband hér hjálpar þó til.Samantekt-ish God Eater 3 er ekki leiðinlegur leikur en hann fangaði mig ekki almennilega. Persónur leiksins eru óáhugaverðar og sagan er oftar en ekki óþægilega klisjukennd. Bardagarnir geta þó verið skemmtilegir og sérstaklega þegar maður er að berjast við stærstu og erfiðustu skrímslin og þegar maður er að gera tilraunir með mismunandi vopn og hæfileika. Ég spilaði leikinn á PS4 með eintaki sem ég fékk frá framleiðendum hans, Bandai Namco.
Leikjadómar Leikjavísir Mest lesið Ein glæsilegasta skvísa landsins komin á fast Lífið Má gæi úr Húsasmiðjunni vera á listanum þínum? Lífið Stjörnulífið: Sjóðheitar stjörnur í fimbulkulda Lífið Dóttir Anítu og Hafþórs komin í heiminn Lífið Reykti pabba sinn Lífið Ragga Sveins snýr aftur til Íslands Lífið Helgi Björns tryllti lýðinn á 40 ára afmæli Gagnrýni Ferðast umhverfis jörðina á 38 dögum Lífið Tara Sif og Elfar selja íbúðina Lífið Gervigreindin heillar Ólaf Ragnar upp úr skónum Lífið Fleiri fréttir GameTíví í búðarleik GameTíví: Skoða gjörbreyttan Warzone Dragon Age Veilguard: Fimmtán ára ævintýri lýkur PlayStation 5 Pro: Eina leiðin til að spila, ef þú tímir því Sverrir Bergmann snýr aftur í GameTíví GameTíví: Berjast gegn hjörðum uppvakninga Horizon Zero Dawn uppfærður: Besta tækifærið til að stökkva í sögu Aloy CCP kynnir nýjan leik til sögunnar COD Black Ops 6: Myrkraverkin hafa sjaldan verið betri Steindi og Gunnar Nelson spila með GameTíví Íslendingar berjast hjá GameTíví GameTíví: Koma vetrarbrautinni til bjargar í Space Marine Until Dawn: Flott endurgerð á hryllilegum leik GameTíví: Jökull leiðir strákana til sigurs Sjá meira