Lífið

Daði Freyr og Árný eiga von á sínu fyrsta barni eftir nokkrar vikur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Daði Freyr í Söngvakeppninni og er Árný beint fyrir framan hann.
Daði Freyr í Söngvakeppninni og er Árný beint fyrir framan hann.
Tónlistarfólkið Daði Freyr Pétursson og Árný Fjóla Ásmundsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni og það eftir aðeins nokkrar vikur.

Árný greinir frá þessu á Instagram en þar má sjá mynd af henni komin 33 vikur á leið.

Daði Freyr og Árný vöktu bæði athygli fyrir tveimur árum þegar þau tóku þátt í forkeppni Eurovision á Íslandi og slógu í gegn með laginu Hvað með það en lagið varð gríðarlega vinsælt í kjölfarið.

Þau giftu sig hjá Sýslumanninum á Selfossi í nóvember á síðasta ári en hér að neðan má sjá myndin af Árný.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.