Lífið

Tölurnar á bak við brúðkaup aldarinnar

Harry Bretaprins og Meghan Markle gengu í það heilaga  og það kostaði sitt.
Harry Bretaprins og Meghan Markle gengu í það heilaga og það kostaði sitt.
Harry Bretaprins og Meghan Markle gengu í það heilaga á síðasta ári. Hér koma nokkrar skemmtilegar staðreyndir en nýlega var greint frá hvað öll herlegheitin kostuðu.

50 þúsund pund kostaði brúðartertan.

110 þúsund pund kostuðu blómin.

286 þúsund pund kostaði veitingaþjónustan.

32 milljónir punda var kostnaðaráætlun brúðkaupsins.

2,6 milljónir punda kostaði að hreinsa til fyrir brúðkaupið.

18 milljónir fylgdust með brúðkaupinu í beinni í Bretlandi.

29 milljónir í Bandaríkjunum.

1,1 milljón punda fór í að tryggja öryggi fólks sem kom til að fylgjast með við Windsorkastala, halda svæðinu hreinu og í risaskjáina.

4 þúsund pund fóru í ferðakostnað starfsfólks.

14 þúsund pund fóru í flögg og annað.

3 þúsund pund fóru í að búa til fjölmiðlapassana.

390 þúsund pund kostaði brúðarkjóllinn.

7 góðgerðarfélög fengu að njóta góðvildar Harrys og Meghan sem vildu ekki brúðargjafir.

3,4 milljónir manna tístu meðan á athöfninni stóð.

500 egg fóru í brúðartertuna. Það tók sex bakara fimm daga að búa hana til.

25kokkar sáu um brúðkaupsveisluna.

12 milljónum hefur líkað við þær 16 myndir sem konungsfjölskyldan hefur gefið út á Instagram.

250 hermenn tóku þátt í hátíðahöldunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.