Lífið

Ísland ratar á lista yfir ofmetnustu ferðamannastaði heims

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alex og Marko fara vel yfir málin og hafa þeir sjálfir komið til Íslands.
Alex og Marko fara vel yfir málin og hafa þeir sjálfir komið til Íslands.
Mennirnir sem kalla sig Vagabrothers halda úti YouTube síðu og þar birta þeir reglulega myndbönd sem mörg tengjast ferðalögum.

Fyrir nokkrum dögum kom út myndband frá þeim þar sem þeir velja sextán ofmetnustu ferðamannastaði í heiminum.

Listi sem er nokkuð áhugaverður en hér að neðan má sjá yfirferð Alex og Marko um málið en þeir fengu nokkra álitsgjafa til að velja ofmetinn ferðamannastað.

Dave og Deb settu Ísland á listann og fannst þeim alls ekki gaman að koma hingað og mun skemmtilegra að fara til Grænlands. Alex og Marko voru sjálfir ekki sammála öllum álitsgjöfunum.

1. Los Angeles / Hollywood í Bandaríkjunum 

2. Ítalía

3. Taj Mahal á Indlandi

4. Balí, Indónesía

5. Las Vegas í Bandaríkjunum 

6. Tæland

7. Kraká í Póllandi

8. Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum

9. New York í Bandaríkjunum

10. Filippseyjar

11. Prag í Tékklandi

12. Kúala Lúmpúr 

13. Spánn 

14. Ísland 

15. Mexíkó 

16. Grikkland






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.