Svaka kúl lúðasveit frá Þorlákshöfn Þórarinn Þórarinsson skrifar 10. apríl 2019 15:00 Aðflutti andskotinn hún Ágústa Ragnarsdóttir er virðulegur formaður hinnar fjölmennu og öflugu lúðasveitar sem blæs rokkuðu lífi í bæjartuskurnar.
Lúðrasveit Þorlákshafnar heldur tvenna stórtónleika í þessari viku undir yfirskriftinni Brassrokk og nýtur að þessu sinni liðsinnis ekki ómerkari kappa en Eyþórs Inga Gunnlaugssonar og Þráins Árna Baldvinssonar, gítarleikara Skálmaldar, sem munu fara með sveitinni í gegnum nokkra sígilda rokkslagara. „Tónlistarlífið hérna er ansi fjörugt og ef við tökum höfðatöluna þá er Lúðrasveit Þorlákshafnar fáránlega fjölskipuð,“ segir Ágústa Ragnarsdóttir, hornleikari og „virðulegur formaður“ eins og hún orðar það. „Það má segja að við séum alltaf í það minnsta 30 sem erum á hverjum tíma og það telst nú ansi gott hérna í sveitinni.“ Hún segir langflesta í lúðrasveitinni eiga rætur að rekja til Þorlákshafnar og þar búi flestir þótt einhverjir komi frá Selfossi og Reykjavík. „Það eru þá einhverjir brottfluttir en hafa þó vel flestir fengið sitt tónlistarlega uppeldi í Tónlistarskóla Árnesinga hérna í Þorlákshöfn. En svo eru svona lúðar eins og ég sem er aðfluttur andskoti sem lærði annars staðar,“ segir Ágústa. „Það er rosalega rík tónlistarhefð í bænum og lúðrasveitin hefur hægt og rólega fest sig í sessi og hún hefur meðal annars orðið til þess að kynslóðirnar haldist í sveitinni.“ Ágústa segir þau yngstu í lúðrasveitinni vera í 10. bekk en þau elstu eru komin eitthvað yfir sextugt. „Þetta er nefnilega fáránlegt. Það er ekkert kynslóðabil í sveitinni sem er eiginlega ansi magnað. Og eins og kannski í lúðrasveitum almennt þá komum við úr rosalega fjölbreyttu starfsumhverfi, stéttum og svona,“ segir Ágústa um hina rótgrónu sveit sem varð 35 ára í febrúar, stofnuð 1984.Lúðrasveitin hefur gert strandhögg í Lettlandi þar sem hún hreppti annað sætið í lúðrasveitakeppni.Engin búningasveit „Við höfum gert eitthvað mjög stórt á hverju einasta vori á undanförnum árum sem er þá hluti af því að fólki finnist spennandi að vera í þessu, að vera ekki bara lúðrasveit eins og margir kannast við sem eru bara að marsera á einhverjum tyllidögum og þess háttar. Við höfum aldrei beint verið svona búningalúðrasveit.“ Og í ár eru það sem fyrr segir tvennir rokkaðir tónleikar með aðstoð þekktra rokkhunda sem lúðrasveitin blæs til. Fyrri tónleikarnir verða í Seljakirkju í kvöld og þeir seinni í Íþróttamiðstöðinni í Þorlákshöfn laugardaginn 13. apríl klukkan 15. „Það er bara ótrúlegt hvað menn eru til í þetta með okkur,“ segir Ágústa um aðkomu þeirra Eyþórs og Þráins að þessu sinni. „Við erum svo kúl. Við erum svakalega kúl lúðar og þeir virðast ekkert þurfa að hugsa sig neitt sérstaklega um. Eins og þessir tveir sem eru með okkur núna. Það eru engir stjörnustælar og þetta hleypir spennu í mannskapinn og yngra liðinu finnst ógeðslega spennandi að vera með svona frægu fólki og gamla liðinu svosem líka.“Killing in the name of?… Lög eins og The Show Must Go On, Higher and Higher, Kvaðning með Skálmöld og Fjöllin hafa vakað eru meðal þeirra laga sem munu hljóma á tónleikunum ásamt Killing in the Name með hljómsveitinni Rage Against the Machine. Hvaða klikkun er það að bjóða upp á Rage Against the Machine. Stendur þú fyrir þessu? „Ekki persónulega en ég var í hópnum sem valdi lögin. Þetta er geðveikt lag, sko, og mjög athyglisvert að heyra það í þessum flutningi. Þetta er brjálað brass og þetta er lagið sem við notum til að kynna strákana til sögunnar á tónleikunum,“ segir Ágústa. „Við byrjum á rosalegri Þursaflokkssyrpu þar sem lúðrasveitin er bara að spila, síðan förum við beint í Rage og svo kemur Eyþór inn alveg hreint öskrandi. Og þannig hefst þeirra aðkoma að tónleikunum.“
Ölfus Mest lesið „Þetta má ekki vera feimnismál“ Lífið „Ástarsorg er best í heimi“ Lífið Fréttatía vikunnar: Eddan, rektorskjör og mannanafnanefnd Lífið Fimm tíma morgunrútínan sem allir eru að tala um Lífið Hefur miklar áhyggjur af auknum vopnaburði barna Lífið „Ég verð dauður áður en kvikmyndahúsin loka“ Menning Eiginkona rafrettukóngs keypti eitt dýrasta einbýlishús Garðabæjar Lífið „Þetta var ekki alið upp í mér“ Lífið Fólk spyrji um veganisma af forvitni frekar en til að vera með leiðindi Lífið „Ég kalla mig alltaf flugfreyju þó að ég sé strákur“ Lífið Fleiri fréttir „Þetta má ekki vera feimnismál“ „Ástarsorg er best í heimi“ Fréttatía vikunnar: Eddan, rektorskjör og mannanafnanefnd Fólk spyrji um veganisma af forvitni frekar en til að vera með leiðindi Fimm tíma morgunrútínan sem allir eru að tala um Eiginkona rafrettukóngs keypti eitt dýrasta einbýlishús Garðabæjar Dóttir Fox og Kelly komin í heiminn „Þetta var ekki alið upp í mér“ Hefur miklar áhyggjur af auknum vopnaburði barna Bitin Bachelor stjarna Svara auknum fordómum og fáfræði með jákvæðni og list „Ég kalla mig alltaf flugfreyju þó að ég sé strákur“ Tíu skref í átt að nýju starti í svefnherberginu Fjallvegir á Vestfjörðum fengu hjartað til að slá hratt Ástfangin í sextán ár Unnur og Travis orðin tveggja barna foreldrar Sneri við lífinu eftir skyndilegt fráfall frænda í djammferð erlendis Grunaði ekki að fíflalætin myndu ferðast svona víða Tveggja milljóna króna nefaðgerð í Tyrklandi Hætt við brúðkaupið og allt í baklás Þjálfaðar til að svara spurningum frá hjartanu Lét papparassa heyra það Vann Eddu og auglýsti eftir kærasta Vorboðar láta sjá sig „Átt ekki að falla af því að þú skilur ekki spurninguna“ Walliams furðar sig á vinsældum eigin frasa á Íslandi Spöruðu hálfa milljón á mánuði og stefna á íbúðarkaup Kransakaka Jóa Fel án kökuforms Gerðu upp gamlan banka í dönsku krúttþorpi Prinsessan í sínu fyrsta hlutverki með Höllu Sjá meira