Lífið

Nýjasta barn Kanye og Kim komið með nafn

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Stjörnuparið.
Stjörnuparið. Nancy Rivera/Getty
Fjórða barn stjörnuparsins Kanye West og Kim Kardashian West hefur hlotið nafnið Psalm West.

Þessu tísti Kim Kardashian fyrr í dag.

Psalm er annar drengurinn og fjórða barnið sem parið eignast. Fyrir áttu þau hina fimm ára North, hinn þriggja ára Saint og hina eins árs Chicago. Kim og Kanye fengu staðgöngumóður til þess að ganga með Psalm, en Kim hefur fætt fyrri börn sjálf.

Aðdáendur þeirra hjóna hafa beðið fullir eftirvæntingar eftir því að nafn drengsins yrði opinberað, en þau hjónakornin eru þekkt fyrir að fara nokkuð ótroðnar slóðir þegar kemur að nöfnum barna sinna.

Nú geta aðdáendur andað rólega, enda búið að gefa barninu nafn. Nafnið Psalm merkir sálmur sé því snarað yfir á okkar ástkæra ylhýra, eins og enskumælandi lesendur gætu hafa áttað sig á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×