Lífið

Makamál hefja göngu sína á Vísi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ása Ninna Pétursdóttir er umsjónarmaður Makamála sem hefja göngu sína á Vísi næstkomandi mánudag.
Ása Ninna Pétursdóttir er umsjónarmaður Makamála sem hefja göngu sína á Vísi næstkomandi mánudag.
Makamál er nýr undirvefur sem fer í loftið á Vísi næstkomandi mánudag. Umsjónarmaður er Ása Ninna Pétursdóttir.

Í Makamálum munu lesendur Vísis finna skemmtileg viðtöl, pistla og greinar sem eiga það sameiginlegt að fjalla um ástina, tilhugalífið og íslenska stefnumótaheiminn.

Rætt var við Ásu Ninnu í Íslandi í dag í gærkvöldi þar sem hún kynnti hugmyndina á bak við Makamál sem hún segir hafa gerjast innra með sér þegar hún var á tímamótum í lífinu, að skilja eftir langt samband.

„Þá fór maður allt í einu inn á svona nýjan vígvöll þar sem maður kunni ekki reglurnar sem var mjög kómískt og fyndið þá þróaðist þessi hugmynd. Þetta byrjaði sem skemmtisketsa hugmynd en svo langaði mig að taka þetta lengra og taka viðtöl við fólk og sjá hvernig fólk hagaði sér á þessum nýja vígvelli rafrænnar rómantíkur,“ segir Ása Ninna.

Hún segir að það hafi verið mjög fyndið að standa sjálfa sig allt í einu að því að eyða klukkutímum í að velja einhverja æðislega prófílmynd til að setja á Tinder og vera svo að svæpa í staðinn fyrir að vera að lesa fyrir börnin.

Ása Ninna segir að stafræna hliðin hafi komið henni á óvart þar sem samskiptin á samfélagsmiðlum hafi ekki verið til staðar síðast þegar hún var einhleyp.

„Mér finnst þetta rosalega skemmtilegt og áhugavert. Mér finnst áhugavert hvernig samskiptin okkar hafa breyst og hvað tími þrár og rómantíkur hefur styst,“ segir Ása Ninna.

Viðtalið við Ásu Ninnu úr Íslandi í dag má sjá í spilaranum hér fyrir neðan en þar ræðir hún meðal annars hina ýmsu föstu liði sem verða í Makamálum, til dæmis Einhleypa vikunnar, Ástaraldnir, Emojional, Viltu gifast mér og Ríma, búið, bless.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.