Kona í fyrsta sinn aðalhljómsveitastjóri Sinfó Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. júní 2019 14:33 Eva Ollikainen ásamt Láru Sóley Jóhannsdóttur. Sinfóníuhljómsveit Íslands
Finnski hljómsveitarstjórinn Eva Ollikainen hefur verið ráðin í stöðu aðalhljómsveitarstjóra og listræns stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Ollikainen er ráðin til fjögurra ára og mun stjórna hljómsveitinni að jafnaði í átta vikur á hverju starfsári. Auk þess mun hún stýra hljómsveitinni á fyrirhuguðum tónleikaferðum innanlands sem utan. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hljómsveitinni. Áður en Eva Ollikainen tekur formlega við stöðunni í byrjun starfsársins 2020/21 mun hún stjórna tvennum tónleikum með hljómsveitinni á næsta starfsári, þar á meðal 70 ára afmælistónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í mars 2020. Eva Ollikainen hefur vakið verðskuldaða athygli víða um heim fyrir innblásna hljómsveitarstjórn. Hún nam hljómsveitarstjórn hjá Jorma Panula og Leif Segerstam í Sibeliusar-akademíunni. Hún hreppti fyrstu verðlaun í Panula-keppninni fyrir unga hljómsveitarstjóra árið 2003 og var um skeið aðstoðarstjórnandi hjá Kurt Masur og Christoph von Dohnányi. Ollikainen hefur meðal annars stjórnað Útvarpshljómsveitunum í Finnlandi og Svíþjóð, Fílharmóníusveitunum í Stokkhólmi og Turku, Tapiola-sinfóníettunni og Sinfóníuhljómsveitunum í Helsingborg, Lahti og Þrándheimi. Þá hefur hún stjórnað Sinfóníuhljómsveitinni í Vínarborg og Þýsku sinfóníuhljómsveitinni í Berlín. Fyrir skömmu stjórnaði hún í fyrsta sinn Fílharmóníusveitinni í Helsinki, í Níundu sinfóníu Beethovens, og nýrri uppfærslu af Turandot eftir Puccini í Dönsku óperunni. Þá stjórnar hún Beethoven-hring með Jönköping Sinfonietta og ballettunum Hnotubrjótnum og Svanavatninu við Semperoper í Dresden. Ollikainen kom fyrst til Íslands haustið 2005 og stjórnaði framhaldsskólatónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar með nær engum fyrirvara. Hún stjórnaði hljómsveitinni þrisvar á áskriftartónleikum á árunum 2007–10, og nú síðast tvennum tónleikum í Hörpu 2019. „Ég hef fundið til djúprar tengingar við meðlimi Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá því ég stjórnaði henni í fyrsta sinn. Þeir eru ekki aðeins hljóðfæraleikarar á hæsta alþjóðlega plani, heldur er skilningur þeirra og miðlun á tónlistinni einstök,“ segir Eva Ollikainen. „Ég hlakka mjög til samstarfs okkar í nýrri og gamalli tónlist, og er viss um að við munum eiga eftirminnilegar stundir með hinum frábæru íslensku áheyrendum. Mig langar að halda áfram hinu lofsverða starfi hljómsveitarinnar hvað varðar fjölbreytni í verkefnavali og mun ganga enn lengra í þá átt, til dæmis með því að láta verk tónskálda með ólíkan bakgrunn hljóma. Ég hlakka einnig mjög til að starfa með faglegu starfsliði hljómsveitarinnar, en ég varð strax mjög hrifin af orku þeirra og þeirri ákefð sem þau sýna við það að gera Sinfóníuhljómsveit Íslands enn betri.“ Lára Sóley Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands segir um ráðninguna: „Við erum einstaklega stolt og glöð yfir því að hafa ráðið Evu Ollikainen sem nýjan aðalhljómsveitarstjóra og listrænan stjórnanda hljómsveitarinnar. Með ráðningu hennar hefst nýr og spennandi kafli með óteljandi tækifærum. Eva hefur í gegnum starf sitt með hljómsveitinni á liðnum árum náð góðu sambandi bæði við hljóðfæraleikara og áheyrendur með sinni hrífandi orku og eldmóði. Hún skilur hversu mikilvæg hljómsveitin er okkar samfélagi og hvernig samtalið við þjóðina getur eflst enn frekar. Hún hefur allt sem þarf til þess að halda áfram að þróa listræn gæði og gera okkur mögulegt að flytja hágæða tónlist hérlendis sem erlendis. Við erum full eftirvæntingar og tilhlökkunar fyrir samstarfinu og framtíðinni með Evu.“
Tónlist Vistaskipti Sinfóníuhljómsveit Íslands Mest lesið Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Sara Davíðs fann ástina í örmum flugstjóra Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Tíu myndarleg einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu Lífið Færeyjaferð endaði á Hotel Cabin: „Búnar að hlæja viðstöðulaust síðan við fórum upp á völl“ Lífið Stjörnulífið: Heimir Hallgríms ástfanginn í Suður Frakklandi Lífið Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lífið Bannað að ræða fótbolta og heimilisfjármálin á stefnumótum Makamál „Hann er fullkominn eins og hann er“ Lífið Fleiri fréttir Kanónur með listræna þrennu á Flateyri „Leiðin verður að vera óviss svo vel sé“ „Ég lofa miklu blóði“ Gera grín að bransanum með „virtustu verðlaunum heims“ Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira