Lífið

Samkenndin er mikilvæg

Davíð Stefánsson skrifar
Skúli með fjölskyldunni á Spáni. Frá vinstri: Ásta S. Fjeldsted, Jón Louie, Bolli með Skúla, Erik Ribeli, Halldís, Jórunn Tómasdóttir, Anna Katarína, Margrét Ragnheiður hjá afa Skúla, Jón Fjörnir, Eloise Freygang og Tristan Theodór.
Skúli með fjölskyldunni á Spáni. Frá vinstri: Ásta S. Fjeldsted, Jón Louie, Bolli með Skúla, Erik Ribeli, Halldís, Jórunn Tómasdóttir, Anna Katarína, Margrét Ragnheiður hjá afa Skúla, Jón Fjörnir, Eloise Freygang og Tristan Theodór.
„Ég er fæddur í Reykjavík. Alltaf kallaður Skúli Thór en fjölskyldan kallaði mig „Dúa litla“,“ segir Skúli brosandi.

Hann lauk lögfræðiprófi árið 1977 og starfaði um tíma hjá Dagsbrún. Skúli hefur stýrt sjúkrastöð fyrir erlenda vímuefnaneytendur, rekið meðferðarheimili í Svíþjóð og unnið að lýðheilsumálum hjá ESB í Lúxemborg.

Árið 1999 flutti hann heim og varð forstöðumaður Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum. Árin 2003 til 2011 var hann framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands og síðan þá lögfræðingur hjá Orkustofnun. „Ég mun ljúka störfum í ágústmánuði enda sjötugur,“ segir hann.

Fjölskyldan

Skúli er kvæntur Jórunni Tómasdóttur framhaldsskólakennara og eiga þau samtals þrjú börn. „Áhugamálin eru útivist, einkum skíða- og gönguferðir, bókmenntir og tónlist og náttúra Íslands.“ Ég hef haldið tvær málverkasýningar og hef gaman af að setja orð á blað. En auðvitað er fjölskyldan og þessi yndislegu barnabörn í fyrirrúmi.“ Fjölskyldan hélt upp á sjötugsafmælið í vor á Spáni.

„Síðan ætlum við fjölskyldan að borða saman á afmælisdaginn og njóta saman hinnar undurfögru náttúru hér suður með sjó,“ segir hann.

Skúli hefur unnið að margvíslegum samfélagsmálum og ritað fjöldann allan af blaðagreinum. „Mér finnst skipta máli að unga fólkið þrói með sér samkennd með öðrum og ekki síður umhverfinu,“ segir hann. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.