Bíó og sjónvarp

Uppselt á fyrstu tvær sýningar Héraðsins á Sauðárkróki

Birgir Olgeirsson skrifar
Mér finnst þessi mynd alls ekki leggjast illa í fólk, segir rekstrarstjóri Króksbíós.
Mér finnst þessi mynd alls ekki leggjast illa í fólk, segir rekstrarstjóri Króksbíós. FBL/PJETUR
Sauðkrækingar eru afar spenntir fyrir nýjustu mynd leikstjórans Gríms Hákonarsonar, Héraðið, ef marka má miðapantanir á fyrstu tvær sýningar myndarinnar í Króksbíói.

Myndin verður frumsýnd í Króksbíói í kvöld en löngu er uppselt á þá sýningu. Rekstraraðilar kvikmyndahússins ákváðu í gær að bæta við sýningu á fimmtudag og var orðið uppselt á hana í gærkvöldi. Því hefur þriðju sýningunni verið bætt við næstkomandi sunnudagskvöld en enn er lausir miðar á þá sýningu. 

Héraðið gerist í litlu samfélagi og segir sögu Ingu, miðaldra kúabónda, sem gerir uppreisn gegn kaupfélaginu á staðnum. Hún reynir að fá aðra bændur í lið með sér en það gengur erfiðlega þar sem kaupfélagið hefur sterk ítök í sveitinni.

Grímur Hákonarson hefur sjálfur sagt frá því að upphaflega ætlaði hann sér að gera heimildarmynd um Kaupfélag Skagfirðinga. Þegar hann fann fyrir því að margir voru feimnir að tjá sig opinberlega um málefni Kaupfélags Skagfirðinga ákvað hann að safna saman þeim sögum sem hann hafði fengið frá Sauðárkróki og Skagafirði og gera leikna mynd sem er Héraðið.

Arndís Hrönn Egilsdóttir og Sigurður Sigurjónsson í hlutverkum sínum í Héraðinu.Héraðið
Atburðir myndarinnar gerist í sveitarfélaginu Erpsfirði sem ekki er til á Íslandi, og fær kaupfélagið heitið Kaupfélag Erpsfirðinga.

Króksbíó reka hjónin Bára Jónsdóttir og Sigurbjörn Björnsson ásamt Guðbrandi Guðbrandssyni. Hafa þau rekið bíóið undir nafninu Króksbíó frá árinu 2005 en þar á undan hafði Sigurbjörn rekið bíóið frá árinu 1992 undir nafninu Sauðárkróksbíó.

Bára segir í samtali við Vísi að húsið taki 92 gesti í sæti en hún segir mikinn áhuga á myndinni á Sauðárkróki. 

„Mér finnst þessi mynd alls ekki leggjast illa í fólk. Þvert á móti finnst mér það sýna henni mikinn áhuga,“ segir Bára í samtali við Vísi. 

Kvikmyndahúsið á Sauðárkróki er eitt af elstu kvikmyndahúsum landsins en þar var byrjað að sýna kvikmyndir á þriðja áratug síðustu aldar. 

Bára segir að þau sé ekki að reka bíóið í dag í einhverri von um gróða. „Það eru ekki feitir launtékkar hérna. Við erum meira að þessu af því okkur finnst þetta gaman og lítum á þetta sem samfélagsskyldu. Við viljum að það sé starfrækt bíó á Króknum






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.