Lífið

Bað hústökufólkið að yfirgefa húsið árið 2011 og nú er komið að næstu framkvæmdum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hægt verður að sjá lokaútkomuna í þættinum Gulli Byggir á Stöð 2 í kvöld.
Hægt verður að sjá lokaútkomuna í þættinum Gulli Byggir á Stöð 2 í kvöld.
Gulli Helga fór af stað með nýja þáttaröð af Gulli Byggir á Stöð 2 í síðustu viku. Í fyrsta þættinum var fylgst með framkvæmdum við Bræðraborgastíg.

Sandra Hlíf Ocares keypti lítið einbýlishús í miðborg Reykjavíkur árið 2011 en þá hafði hústökufólk komið sér fyrir í húsinu og var ástandið á því slæmt. Hún tók við eigninni í maí 2011 og var flutt inn í júní sama sumar. Það gekk mjög vel að fá hústökufólkið til að yfirgefa eignina og var það gert með fínum fyrirvara.

Hér að neðan má sjá brot úr fyrsta þættinum.

Klippa: Heljarinnar framkvæmdir við Bræðraborgastíg
Nú ætlar hún að taka háaloftið í burtu og opna fyrir inni í stofu til að fá meira loftrými og í leiðinni bjartari og fallegri stofu. Einnig ætlar hún að taka eldhúsið í gegn. Hún ætlaði sér fyrst að taka sér aðeins tvær vikur í verkefnið en það heppnaðist því miður ekki. 

Í kvöld verður hægt að sjá útkomuna eftir allar þessar framkvæmdir. Húsið er byggt árið 1911 og hefur Sandra unnið að því síðan 2011 að koma því í gott stand.

Vísir fylgdist vel með því þegar Sandra keypti húsið á sínum tíma en í tengdum fréttum hér að neðan má sjá hvernig ferlið gekk fyrir sig þá.


Tengdar fréttir

Öryggismyndavélar vakta hústökuhúsið

„Ég er orðin nokkuð örugg. Mér líður allavegana betur með þetta," segir Sandra Hlíf Ocares, sem keypti niðurnítt hús á Bræðraborgarstígnum fyrir nokkru, en nú er búið að koma upptökuvélum í húsið.

Blóðug hjálparhella hreinsar hústökuhúsið

Eins og meðfylgjandi myndband sýnir mættu vinir Söndru til hennar í dag, laugardag, og hjálpuðu henni að hreinsa draslið úr garðinum og innan úr húsinu en útgangurinn var vægast sagt ævintýralegur þegar Sandra fékk það afhent.

Eggjum kastað í hústökuhúsið

„Við vorum búin að vera hérna um helgina að gera fínt í kringum húsið og svona. Það var mjög leiðinlegt að koma að húsinu og sjá að það var búið að kasta eggjum í framhurðina," sagði Sandra Hlíf Ocares.

Breytingarnar eru svakalegar (hústökuhúsið)

„Þetta er ennþá pínu óraunverulegt," segir Sandra Hlíf Ocares, sem keypti niðurnítt hús á Bræðraborgarstígnum fyrir nokkru, en það tók hana ekki nema fjórar vikur með hjálp fjölskyldu, vina og fyrirtækja sem aðstoðuðu hana að gera húsið íbúðarhæft.

Keypti hústökuhúsið - sjáðu hryllinginn

Sandra Hlíf Ocares keypti nýverið 100 fermetra hús í Vesturbænum, nánar tiltekið húsið á horni Bræðraborgarstígs og Hávallagötu þar sem hústökufólk hefur hafst við nokkuð lengi.

Bjartsýn á framhaldið þrátt fyrir viðbjóðinn

Það lítur allt út fyrir að Sandra Hlíf Ocares sé á bjartsýnislyfjum en hún er staðráðin í að gera hústökuhúsið upp og flytja inn í það með stelpunum sínum tveimur innan þriggja vikna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.