Hrekkjavakan er haldin hátíðleg víða um heim þann 31. október og má búast við ýmsum kynjaverum á ferli hér á landi þann dag.
Guðmundur Thor Kárason og fjölskylda hans leggja mikið upp úr graskersútskurði og öðrum þáttum tengdum hrekkjavökunni á þessum tíma árs.
„Við fjölskyldan höfum alltaf verið dugleg að skera út grasker fyrir hrekkjavökuna og setja þau síðan út með logandi kertum,“ segir Guðmundur.

Margir landsmenn hafa haft orð á því síðastliðin ár að hrekkjavakan sé ekki íslensk hefð heldur hefð sem tekin hefur verið upp frá Ameríku. Guðmundur segir að í upphafi hafi fjölskyldan ekki verið spennt fyrir hrekkjavökunni en segir að með tímanum hafi skoðun þeirra breyst.
„Hrekkjavakan naut ákveðinna fordóma hjá okkur í upphafi þar sem þetta er innfluttur amerískur siður. Það reyndist bara svo skemmtilegt að setjast öll saman og skera út graskerin að við höfum alveg tekið siðbót og njótum þess nú í botn að halda Hrekkjavökuna hátíðlega,“ segir hann.
Þau hafa skorið grasker af miklum metnaði í áraraðir líkt og sjá má á myndunum og eitt árið fóru þau afar óhefðbundna leið í útskurðinum.
„Eftirminnilegasta graskerið var þegar við notuðum GSM-síma sem auga á graskerið. Þá fundum við myndband af auga sem fyllti út í skjáinn á símanum og þannig fékk graskerið lifandi auga sem hreyfðist. Síminn lyktaði reyndar af graskeri talsverðan tíma eftir þetta,“ segir Guðmundur glaður í bragði. Fleiri myndir ásamt myndbandi má sjá á frettabladid.is.

Svona skerum við út grasker:
1. Leita að hugmyndum á alnetinu um hvernig megi útfæra graskerskurðinn.
2. Teikna með tússpenna á graskerið það sem á að skera út. Ákveða hvað er skorið alveg í burtu, hvað er hálfskorið (hvítt/gegnsætt) og hvað er túlkað með línum/skurðum.
3. Byrja að skera út opið á graskerinu og síðan nota stóra málmskeið/málmsleif til að hreinsa og skafa innan úr því.
4. Nota dúkahníf eða annan mjög beittan hníf til að skera út graskerið. Ég er venjulega með einn dúkahníf og einn langan, mjóan hníf.
5. Setja sprittkerti, 1-3 stykki, í graskerið og njóta róandi áhrifa þess.