Samningur sem Már Guðmundsson þáverandi seðlabankastjóri gerði við Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits bankans, árið 2016 var loks afhentur fyrr í mánuðinum, að undangengnum málaferlum bankans gegn blaðamanni Fréttablaðsins.
Sjá einnig: „Algjör stjörnuleikur“ Ingibjargar hafi sýnt fram á mikilvægi hins umtalaða samnings
Samningurinn varðaði styrk til háskólanáms Ingibjargar við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum og er hann metinn á rúmar átján milljónir króna. Í samningnum var gerð krafa um að Ingibjörg starfaði fyrir bankann í a.m.k. tvö ár, sem að endingu urðu fjögur. Ekki var þó gerð krafa um vinnuframlag af hálfu Ingibjargar að námi loknu.

Eftir að Seðlabankanum var gert að afhenda samninginn sagði Gylfi Magnússon, formaður bankaráðs Seðlabankans, í samtali við RÚV að samningurinn væri „sérstakur gjörningur“. Þá taldi Gylfi samninginn einsdæmi innan bankans.
3,5 milljónir í stutt námskeið innanlands
Í svari Seðlabankans við fyrirspurn Vísis um námsstyrki bankans segir að bankinn hafi sett sér fræðslustefnu þar sem „starfsmenn eru hvattir til að taka frumkvæði og ábyrgð til að bæta þekkingu og færni í starfi.“Til að ná þeim markmiðum hafi bankinn reynt að verja árlega til fræðslumála starfsfólks fjárhæð sem nemur 1,5% af greiddum launum. Reyndin hafi verið aðeins undir því markmiði.
Í flestum tilvikum sé um að ræða stutt fræðslu- og endurmenntunarnámskeið sem fjöldi starfsmanna hafi tekið þátt í. Samanlagður kostnaður á árinu 2018 vegna námskeiða af þessu tagi innanlands nam þremur og hálfri milljón króna.Þá séu ekki gerðir sérstakir samningar um styttri námskeiðin.

Einn sérstakra styrkþega enn í framhaldsnámi
Bankinn hafi hins vegar í nokkrum tilvikum á undanförnum árum stutt starfsmenn til framhaldsnáms samhliða starfi eða með kröfu um vinnuframlag, líkt og í tilfelli Ingibjargar. Í einhverjum tilvikum hafi erlendir háskólar sóst eftir starfsmönnum seðlabanka í nám og þá fellt niður skólagjöld að hluta.Fjárútlát bankans vegna sérstakra samninga af þessu tagi, þ.e. um lengra og dýrara nám, frá árinu 2015 voru á bilinu frá einni milljón króna og upp í 4,2 milljónir króna fyrir hvern samning fyrir sig.
Þar er ekki meðtalinn samningurinn við Ingibjörgu, líkt og fram hefur komið, en ljóst er að hann stendur sér á báti og varðar töluvert hærri fjárhæðir en aðrir samningar sem hér eru nefndir.
Í svari Seðlabankans segir að alls hafi verið gerðir sérstakir samningar við átta starfsmenn bankans og þar af séu sex í starfi hjá Seðlabankanum. Þá stundar einn enn framhaldsnám erlendis og annar, Ingibjörg Guðbjartsdóttir, starfar erlendis.